Friday, April 18, 2008

Work done

Jæja, síðasti dagurinn í vinnunni búinn:)

Og kominn tími til. Það er auðvitað fínt að vinna en þegar maður er orðinn draghaltur... not so much. Sérstaklega þegar maður er í vinnu þar sem er mikið um hreyfingu. Það var dáldið skrýtið að kveðja alla, það eru nú all margir karakterarnir sem maður er búin að kynnast þarna í Fossvogsskóla:)

Allaveganna, smá fréttir. Fékk sms frá Beggu vinkonu áðan og hún er uppi á fæðingardeild! Eitthvað aðeins fyrir settan tíma en.. þvílíkt spennandi:) Ég vona að allt gangi vel hjá henni. Vildi eiginlega að ég væri líka komin upp á fæðingardeild. Time to pop this baby out finnst mér. Hann er nú orðinn ansi plássfrekur finnst mér..

Þangað til næst..

Lifið heil:)

No comments: