
Ég má til með að leiðrétta smá misskilning.
Það er ekkert sérstaklega mikið orlof að vera í fæðingarorlofi. Það þarf að gera ýmislegt eins og að: gefa brjóst, vakna á nóttunni, skipta á bleyjum, skúra gólf, þvo þvott, VASKA UPP (erum ekki enn komin með uppþvottavél!), þrífa, sjá um tvö börn, elda mat, versla inn og sinna tilfallandi verkefnum.
Ég hef sterklega á tilfinningunni að karlmenn séu ekkert sérstaklega mikið að skilja hvað það er mikið sem konur gera. Því má ekki gleyma að öll ofantalin verkefni hverfa ekkert af yfirborði jarðar þegar konan byrjar svo aftur að vinna. Já nei, nei. Þau bætast við vinnuna.
Konur eru vanmetnar. Það er alveg á kristal tæru. Af hverju karlmenn líta ekki allir með tölu á okkur með lotningaraugum og stjörnur í augunum er beyond me.
Ég meina, hvað myndu þeir gera án okkar?
?????
2 comments:
væri ekki bara alltaf pizza?
Jú, og pulsur!
Post a Comment