
er að lesa stjörnuspá mbl.is
Bogmaður: Dagurinn í dag verður hálf mislukkaður, þess vegna skaltu horfa á hann með þeim formerkjum.
Það er alveg makalaust hvað stjörnuspáin á alltaf vel við mig samt. Svaf ekki vel í nótt þannig að dagurinn byrjaði hálf skringilega. Svo voru slæmar fréttir í blöðunum. Ég ætla að læra í dag en það virðist vera ýmislegt sem á eftir að trufla það.. Vona að dagurinn verði ekki alveg glataður samt..
Fingers crossed!
2 comments:
Ég svaf líka illa í nótt, sé fram á ómögulegan dag. Vona að það rætist úr þínum, knús.
Já, það er alveg makalaust hvað magn og gæði svefnsins hefur mikil áhrif.. þess vegna langaði mig til að faðma Davíð Oddson í gær þegar hann sagði að fólk hefði verið að sprengja sprengjur fyrir utan heimilið hans á nóttunni til að ónáða hann og halda fyrir honum vöku. That's just mean. Vona að ég sjái þig þegar þú kemur heim. Veit ekki hvort ég sé með pössun fyrir göngutúrinn á sunnudaginn.. vá, þetta er lengsta komment ever..
Post a Comment