Sunday, February 1, 2009

Mikið ofboðslega er gott að fara í burt..

.. úr þessari blokk og úr þessari borg þó ekki sé nema í eina nótt. Við fórum á Snæfellsnes í gær og gistum á Hótel Búðum í nótt (afmælisgjafirnar okkar til hvors annars sko). Það var gjörsamlega yndislegt að komast aðeins út á land. Æðislegt.

Fann um leið og við keyrðum inn í borgina núna áðan hvað mig langaði ekkert heim til mín. Bara engan veginn. Nada. Ekki neitt.

Skrýtið. Ég man að mér leið mjög svipað þegar ég kom heim frá London í ágúst. Mig langaði bara ekkert heim. Finn að ég er tilbúin til að flytja - bara eitthvert (innan eðlilegra mannlegra marka að sjálfsögðu!). Það er nú ekki langt síðan að ég gat "alls ekki" hugsað mér að flytja úr Hlíðunum þannig að þetta er mjög mikil framför. Núna er ég gjörsamlega og algerlega tilbúin til að kanna nýjar slóðir og breyta algerlega um umhverfi.

(er reyndar ekki að tala um að flytja erlendis - það kæmi ekki til greina hjá okkur..)

No comments: