Tuesday, March 10, 2009

komin heim úr svaðilför

Jæja, þá er konan komin úr vetrarríkinu norðan Holtavörðuheiði og heim í sólina.

Það var bæði gott að fara og gott að koma. Það er alltaf ágætt að komast aðeins í burtu úr blokkinni og borginni og út í náttúruna. Það er líka alltaf gott að vera í návist Siggúar (já og Hjörvars líka;)) en það var ákaflega mikill vetur í bústaðnum sem ég leigði hjá BHM. Þetta er bústaðurinn Hábær sem er uppi í fjalli rétt fyrir utan Sauðárkrók. Það hefði ekki verið vegur að komast þetta án þess að vera á jeppa, svo mikið er ansi víst.

Það var yndislega fallegt landslag þegar við "vöknuðum" á laugardaginn. Ég set vöknuðum í gæsalappir því það var nú ekki mikið hægt að sofa í þessum kofa vegna láta í hitaveitunni. Meira að segja börnin kvörtuðu undan látunum í ofnunum.. Allaveganna, svo fórum við upp í fjall (Tindastól) og við Óli fórum á skíði í smá stund. He he.. réttara sagt fór ég á skíði í smá stund en hann Óli minn var aðallega að koma sér á skíðin milli þess sem hann datt.. (þakka manninum í lyftunni fyrir alla sína þolinmæði..).

Síðan heilsuðum við upp á Siggú á Króknum og fengum skúffuköku og kaffi:) Fórum svo upp í bústað og urðum föst þar það sem eftir var ferðarinnar (einn dagur) vegna veðurs.. Siggú og Hjörvar, á sínum fjallabíl, komu síðan í mat bæði kvöldin eða þau komu réttara sagt með mat seinna kvöldið..

og Siggú vann í Kana:)

Ævintýraleg ferð, gott að hitta Siggú sína og Emilíu sína en líka afar gott að vera komin heim í steinhús. Stundum þarf maður að fara í burtu til að átta sig á því hvað maður hefur það nú gott heima hjá sér:)

Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni:






































































No comments: