Finn fyrir mikilli mengun í Reykjavíkinni minni. Ekki gott.
Skil ekki alveg hvernig fólki dettur í hug að ana út í bíl og keyra .. bara eitthvað. Eða keyra yfir höfuð. Af hverju tekur fólk ekki strætó í staðinn eða hjólar eða labbar?
Hefur það engan sans fyrir næstu kynslóðum? Á forsíðu Fréttablaðsins í gær voru Kínverjar (eða Japanir?) á Austurvelli að horfa á styttuna (af Jóni forseta..? anyways,) og þau voru með klúta fyrir vitunum.
Í gær sá ég mann hjóla með skýlu yfir nefinu og munninum.
Hvað er eiginlega að gerast?! What is happening to the world og af hverju í andskotanum virðist öllum standa á sama?
(Skrifað 2 tímar síðar:)
Ég er nú meiri Ragnar Reykásinn eins og Svanur er alltaf að benda mér á. Var með Stefán Mána í aðlögun í dag hjá dagmömmunni og átti að skreppa í burtu í hálftíma. Ég var náttúrulega bara að "keyra eitthvað"... he heemm.
Fór nú reyndar með dósirnar og flöskurnar hans Svans í endurvinnsluna og svo að ryksuga bílinn (var reyndar heillengi keyrandi um að finna bílaryksugu..) en..
over and out:/
RR.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment