Þessar tvær:)
Alltaf jafn gaman og gott að hitta Ásdísi og Hrafntinnu. Gott að eiga góða vini:)
Thursday, July 30, 2015
Wednesday, July 29, 2015
29/7 2015
Að vera maður eða mús. Það er spurningin.
Fór til læknis í dag vegna ástandsins á mér. Er máttlítil og orkulítil vegna þessa blóðþurftar/járnleysis. Sólrún vinkona sagði mér að það væri til eitthvað sem heitir járnsprauta sem gæti flýtt fyrir batanum og þess vegna fór ég til læknis í dag. Ómótt og leið illa bara við tilhugsunina um væntanlega blóðprufu....
Sá strax á lækninum, sem var þýsk voða spes kona, að henni leist ekkert á þessa járnsprautu. Það væru aukaverkanir af þessari sprautu og bara vesen. Það væri miklu betra að taka járntöflur og svona. Hún vildi samt endilega fá mig í blóðprufu í fyrramálið til að tékka statusinn á járninu. Voða spennt fyrir að vita niðurstöðuna.
Ég er að spá í að vera mús.
Er nokkuð viss um að niðurstaðan myndi ekki vera að fá járnsprautu.
Mýs eru nú ferlega sætar og fínar.
Ég er ekki maður. Ég er mús.

Tuesday, July 28, 2015
28/7 2015
Sérvitna húsmóðirin varð sérvitrari í dag.
Er að prufa einhvern hreinsunarkúr sem ég fann á netinu sem á að hreinsa eiturefnin út og hreinsa ristilinn. Þetta á að vera rosa gott fyrir meltinguna. Maður blandar sem sagt 3 dl af vatni saman við 1/10 matskeið af Cayanne pipar dufti og 2 matskeiðum af maple hunang og safa úr hálfri sítrónu. Maður á að drekka 5-8 glös af þessu í 10 daga og ... ta da!
En hvað það væri gaman ef ég myndi þá umbreytast í fegurðardrottningu með rennisléttan maga og þéttari brjóst. Mmmm....
Krossa putta! :)
Ég tek sem sagt járndrykk kvölds og morgna, svo magnesium drykk og núna þetta.
Það er allavegana von mín að þetta allt bjargi mér úr þessu orkuleysi. Sterkari og sterkari með hverjum deginum. Samt ekki vinnufær alveg strax...

Monday, July 27, 2015
27/7 2015
Undarlegur dagur.
Mætti í vinnuna af því að fríið mitt er búið en í ljósi aðstæðna - afleysingafólk laust til að leysa meira af og ég orkulítil - bauð yfirmaður minn mér að vera áfram í fríi út vikuna.
Vúhúú!!

Sunday, July 26, 2015
26/7 2015
Vó.
Ég var að gera brjálaða uppgötvun. Eða sko internetið benti mér á ofsasens sniðugt en það er að nota kókosolíu sem make up remover. Og það virkar!! Þetta er svona mikil "uppgötvun" af því að þetta þýðir að ég þarf aldrei að kaupa make up remover ever again skiluru!

Saturday, July 25, 2015
24/7 2015
Yndislegur dagur í Laugardalnum.
Horfði á Óla keppa á Rey Cup og hitti svo þessa dásemd:
Alltaf jafn gefandi að hitta Tinnu og alltaf eins og við hittumst síðast í gær:) Heppin ég að eiga svona frábæra vinkonu.

Thursday, July 23, 2015
23/7 2015
Mikið sem ég er þakklát fyrir sólardaga á þessum síðustu frídögum. Trúi ekki að ég sé að fara að mæta í vinnuna á mánudaginn. Finnst það mjög skrýtið..
Óli keppti einn leik í dag með 4 fl. C. Það varð jafntefli 1 - 1. Geggjað veður. Bara æði.

22/7 2015
... ætli maður viti ekki að allt er breytt þegar unglingurinn er farinn að hætta að vilja láta sjá sig með manni.
Barnið vildi ekki að ég tæki þessa sundlaugarvakt. Fannst það alveg glatað. ...

21/7 2015
Núna snýst allt um Rey cup.
Fór á undirbúningsfund og náði mér í góðar vaktir.. Setningarvakt sem kom svo í ljós að ég þurfti að gera nákvæmlega ekkert og svo núna í kvöld (skrifað á fimmtudegi) er það sundlaugarpartýsvakt. Það á að vera tveggja tíma vakt en núna eru strákarnir ekki í svo miklu stuði fyrir þetta partý og hmm... veit ekkert hvað ég á að gera í unglingasundpartýi í tvo tíma...
Gerum bara gott úr þessu, þetta reddast..

Monday, July 20, 2015
20/7 2015
Úff,
þrátt fyrir að hafa fengið að sofa í friði í þrjár nætur þá er það því miður ekki nóg.
Þessir blessuðu krakkagormar náðu að sjúga úr mér þá orku sem ég hafði náð að byggja upp á svona sirka tveimur tímum.
Ég sem vaknaði svo úthvíld og bara leyfi ég mér að segja næstum því hrukkulaus er alveg búin á því og komin með hrukkurnar aftur.
Hjálpi mér allir heilagir. Ég þarf svona mánuð í burtu frá þessu öllu saman.

19/7 2015
Þetta var æðislegur dagur.
Fór og hitti Svan og börnin í Fljótshlíð. Fórum svo og löbbuðum upp hjá Skógarfossi. Það var dásamlegt. Fann þarna hvað það er sem ég þarf og það er að komast meira út í náttúruna og upp á fjöll.
Yndislegt. Meira svona. Pottþétt.

18/7 2015
Ég var svo ótrúlega heppin (og það hefur eflaust bjargað lífi mínu) að Svanur fór út úr bænum með börnin. Ég bara flaut um á bleiku skýji í algerri alsælu. Hver þarf áfengi eða eiturlyf þegar til eru barnlausar nætur? :)
Fór þess vegna barnlaus í barnaafmæli sem var mjög skrýtið. Það hafði líka skrýtin áhrif á mig að vera svona barnlaus innan um fjölskylduna. Fór að sakna minna barna sem var mjög skrýtið.
Mér var farið að líða virkilega illa yfir útganginum á íbúðinni sem var alveg á hvolfi eftir krakkana. Ákvað að taka til og flokka smádót krakkana sem er nú eiginlega bara Stefáns.
Leigði nýju heimildarmyndina um Kurt Cobein heitinn (söngvara Nirvana.) Úff, fannst átakanlegt að sjá hvað manninum hefur liðið illa. Og ég er greinilega orðinn gömul því mér leist ekki neitt á ruglið sem þau voru í. Shit hvað þau hafa verið í miklu rugli. Manni varð bara óglatt.
En vá, hvað maðurinn var mikill snillingur. RIP elsku Kurt.

17/7 2015
Járnlítill dagur.
Fór að útrétta í hádeginu og var bara alveg búin á því. Börnin líka búin að sjúga úr mér alla orku. Það er bara ekkert hægt að vera slappur eða veikur. Það bara er ekkert í boði. Hver á þá að vera með börnin?
Allavegana, þetta var nú líka sólríkur dagur og það var mjög notalegt að vera í smá sólbaði hjá ma+pa. Fórum svo í sund með krakkana. Góður dagur en járnlaus dagur.

Friday, July 17, 2015
16/7 2015
Jæja,
þá eru ársbirgðirnar komnar í hús
og þá er bara að byrja að skeina! :)
Mér þætti gaman að vita andvirði vinningsins... hmmm.. spurning hvort ég nenni að reikna það saman áður en ég byrja að skeina..

Thursday, July 16, 2015
15/7 2015
Er búin að taka Sex and the City maraþon núna í veikindunum. Mér er samt að batna sem er auðvitað gott:)
Horfði á seríu 2 og stökk ekki bros á vör fyrr en í endann enda bara fárveik og rænulítil eftir því. En núna er ég farin að hlægja með þeim skvísum. Æ, hvað það er gott að eiga svona klassík. Á sem sagt allar seríurnar nema fyrstu.
Væri svo aaaaalveg til í að eiga Friends seríurnar allar líka. Ætlaði einhvern tímann að gera eitthvað í þessu og kaupa en þetta var bara fáránlega dýrt í Skeifunni allavegana þá...

14/7 2015
Las merkilega grein á hinu alræmda interneti í fyrradag.
Auðvitað þýðir það ekki að greinin sé sönn en allavegana. Minnir að hún hafi verið á síðunni spiritscience.com eða eitthvað álíka. Hún fjallaði um Magnesium og skv. henni þjáumst við öll af magnesium skorti sem er þvílíkt nauðsynlegt eliment/mineral. Þarna sagði að þessi skortur kæmi fram í öllum helstu kvillum sem hrjáir okkur mannfólkið eins og meltingarvesen (harðlífi), skapsveiflur, þunglyndi, kvíði, Over Compulsive Disorder og fleira og fleira.
Mér fannst þetta merkileg grein og passa mig á að fá mér tvo bolla af magnesium dufti (í soðið vatn) kvölds og morgna núna. Keypti mér einhvern tímann magnesium duft í Krónunni en held að þetta fáist út um allt núna.

Wednesday, July 15, 2015
13/7 2015
Það sem ég var heppin á föstudaginn.
Vann ársbirgðir af Fifa salernispappír í facebook-leik Papco! Ársbirgðir....
Úff.. hvar gæti ég geymt lagerinn... Mamma....?
Pabbi myndi nú aldeilis verða ánægður.... en ef ég byði þeim hluta af vinningnum í staðinn?
Hmm...

Sunday, July 12, 2015
12/7 2015
Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason.
Úff.. Err.. vá..
Þessi bók er með endæmum sérstök. Byggð að hluta til á sannsögulegum atburðum aðalpersónunnar (Herbjörg María Björnsson) en er líka að hluta til login, þ.e.a.s. skáldskapur.
Höfundurinn er auðvitað á hállri braut með að semja/skrifa þetta verk og rámar mig eitthvað í deilum eftir að bókin kom út þar sem ættingi umræddrar aðalpersónu sem bókin er byggð á var alls ekki sátt. Skil ég það reyndar mæta vel þar sem það koma rosalegir hlutir fyrir konuna í bókinni og finnst manni hálf skrýtið að vita ekki hvað er satt og logið.
Allavegana, hló og grét yfir þessari bók sem þýðir auðvitað að hún er góð. Ég rann í gegnum flestar blaðsíðurnar sæl í sinni en stundum fannst mér bókin verða helst til of flókin og of mikið verið að láta rigna flóknum orðum í sömu setningarnar svo maður átti ekki svo auðvelt með lesturinn á köflum.
Athyglisverð bók, vægt til orða tekið.

11/7 2015
En hvað maður er ríkur að eiga svona skemmtilega og góða fjölskyldu:) Mikið sem ég er þakklát fyrir það. Hið árlega fjölskyldugrill var í gær. Góður matur, góður félagsskapur, gott veður. Verður ekki betra.
Friday, July 10, 2015
10/7 2015
Ég er svo rík að eiga æðislega mömmu.
Hún er stoð mín og stytta, styrkur og klettur. Er alltaf til staðar fyrir mig og ég vona að hún viti hvað ég er þakklát.
Í fyrradag kom hún til mín með blóðmör, hjörtu og lifur; allt járnríkur matur og kom með nokkrar góðar ráðleggingar.
Elsku mamma mín, takk, takk, takk
elska þig endalaust sinnum þúsund:)

9/7 2015
Þennan dag var ég svo heppin að fá Þórdísi vinkonu í heimsókn. Við vorum að vinna saman í Hreint. Hún þekkir járnleysi sjálf og kom með spínat og engifer sem hún bjó svo til engifer boozt úr.
Yndislegt alveg og svo skemmtileg og flott stelpa;

Thursday, July 9, 2015
8/7 2015
Er að skríða saman smám saman eða það vona ég.
Begga kom þennan dag og við fórum út í garð með Guðrúnu Höllu. Það var alveg næs...
Skipti út mínum einu ullarnærbuxum. Henti sem sagt þessum hérna sem eru með risastóru gati á rassinum sem ég er búin að reyna að tjasla saman nokkrum sinnum. Gott að henda þeim..:)
og skipti út fyrir þessar hérna
sem eru auðvitað miklu flottari! Og þá sleppi ég við að röndin sjáist á miðjum lærum eins og síðastliðna vetur..
elska að henda!

Wednesday, July 8, 2015
7/7 2015
Ja hérna hér.
Þessi dagur var rosalegur. Grunaði ekki þegar ég fór út í daginn, á 2. degi í fríi, að ég myndi enda á spítalanum og ekki getað labbað. Fárveik.
Úff. Hafði ákveðið að tríta mig með að fara í fótsnyrtingu. Ég er mikið berfætt á sumrin og fæturnir voru orðnir fullir af siggi (meðfram hælunum) og svo var ég með eitthvað vesen undir annarri stóru táni, líkþorn sem ég hafði eitthvað verið að plokka í. Þetta var svona fótaaðgerða - bla. Á Langholtsveginum.
Anyways, mér byrjar að líða illa í stólnum. Er óglatt, langar að gubba og það næsta sem ég veit er að ég ranka við mér með tvær fótaaðgerðakonur yfir mér að reyna að vekja mig. Þá hafði liðið yfir mig.
Úff. Gat ekki keyrt heim. Bið Svan um að ná í mig. Hann fer með mig á heilsugæsluna og þá líður mér enn verr út af lækna- og nálafóbíunni minni. Kem þar inn og sé mig í speglinum, steingrá í framan. Fæ að leggjast og get varla opnað augun. Læknirinn sendir mig á bráðamóttökuna með læknabréf. Svanur skutlar mér þangað.
Mér líður mjög illa þar og þegar kemur að mér (bara svona hálftíma bið eða eitthvað) fæ ég að leggjast og er bara rúllað inn í herbergi. Dúsa þar í 3 tíma þangað til niðurstaðan úr blóðprufunni kemur. Var ekki svo blóðlítil að þurfa blóðgjöf en er sem sagt blóðlítil og lág í járni. Á mjög bágt þarna og get engan veginn staðið upp. Dett næst um því niður þegar ég má loksins fara- á hjúkrunarkonuna. Dett á hana og held mér varla uppi. Stefán Máni sér þetta:/
Er samt mjög stolt af mér að hafa meikað blóðprufuna (fékk reyndar ógleðistöflu fyrst) og var svo með eitthvað á þessu svæði í svona tvo tíma. Úff.
Tekur á að skrifa þetta. Next up: að láta mér batna.
Er að missa blóð á einhvern hátt. Á að fara í magaspeglun (sem ég hef 0% áhuga á) og svo á ég að skila hægðum eitthvert svo hægt sé að skoða hvort blóð sé í þeim (það hljóta að vera svo margir brandarar sem hægt er að búa til úr því scenario-i en mér dettur enginn í hug akkúrat núna..)
Allavegana, dagurinn endaði á því að ég er hérna heima næstum því alveg orkulaus og fæ mér hvað í kvöldmatinn? Pizzu! Frá Dominos!
Það hefur sko ekki gerst í svona tvö ár eða eitthvað. Slíkt var orkuleysið.
Er líklegast að missa of mikið blóð þegar ég fer á túr. Omg.

Monday, July 6, 2015
6/7 2015
Jæja,
mission dagsins er yfirstaðið og er það vel. Það var sem sagt að fara og sækja um vegabréf fyrir strákana.
Þetta er svona dáldið mikið vesen. Fyrst var að finna eyðublöðin og fylla þau út en ef maður er ekki giftur (held ég) þá þarf maður að mæta með samþykki hins forsjársaðilans og svo undirskrift tveggja votta. Svo þarf maður að mæta með börnin sem þurfa að fara í myndatöku á staðnum og bíða alveg heillengi eftir því vegna þess að þarna er alltaf fullt út úr dyrum (hjá sýslumanninum í Kópavogi sem sagt.)
Úff. Svo glöð að þetta er búið.
Fattaði í gærkvöldi að maður þarf tvo votta að réttri dagsetningu á þetta eyðublað svo að ég fór bara upp í vinnu til að redda því. Einstaklega viðeigandi að mæta upp í vinnu á fyrsta frídeginum sínum:)
Allavegana, núna er bara Emilía eftir í þetta vegabréfadæmi og mikið ofboðslega vona ég að það verði ekki vesen. Hennar vegna.
Þarf reyndar að tékka líka á vegabréfinu hans Svans, hvort að það sé nokkuð að fara renna út..
Útréttingar á mánudegi. Nema hvað.

Sunday, July 5, 2015
5/7 2015
Gærkvöldið var æðislegt.
Við Ásdís fórum út að borða á Vegamót og svo í bíó á myndina Spy með Melissu McCarthy, Jude Law og fleirum.
Myndin var ÆÐI. Svo akkúrat það sem ég þurfti og kannski líka Ásdís. Bara að horfa á bandaríska gamanmynd sem er alveg ógeðslega fyndin. Þetta var svartur húmor. Fíla hann.
Það var þarna atriði alveg í blálokin sem ég bókstaflega grenjaði af hlátri yfir. Tárin láku og ég bara gat ekkert að því gert. Mikið ofboðslega var það gott!
Dagurinn í gær byrjaði á yogatíma. Það var nýr yogakennari sem var með tímann og hún var að tala um að við þyrftum stundum að gera það sem væri best fyrir okkur sjálf svo að við gætum gefið meira af okkur til okkar nánustu. Hún talaði um hvað það væri mikilvægt að elska okkur sjálf svo að við gætum elskað aðra meira o.s.frv.
Ég er bara alveg sammála.
Ef ég hefði verið heima með tengdó skipandi mér í allar áttir hefði það ekki verið í anda sjálfskærleika og það hefði ekki verið neinum til góðs. Ég þurfti klárlega að sleppa út úr prísundinni í eina kvöldstund. Stundum er það líka besta meðalið.
Peace.

Saturday, July 4, 2015
4/7 2015
Stundum verður kona að standa á sínu og láta ekki vaða yfir sig á skítugum skónum.
Þetta er þannig dagur.
Eftir góða samveru í gærkvöldi sletti Svanur því framan í mig að mamma hans væri í bænum. Það er ekki einu minnst á pabbann. Hann bara er þarna og tekur við skipunum.
Eins og alltaf finnst mér það ekkert gaman og fer öll í vörn og vil alls ekki hitta hana. Mér finnst hún dónaleg og eftir að hún gerði mig svo reiða þegar ég var ófrísk af Guðrúnu Höllu að kúlan harðnaði þá hef ég ekkert viljað hafa með hana að gera.
Í það skipti hafði hún sterka skoðun á nafni barnsins (hún hafði reyndar líka sterka skoðun á nafni Stefáns Mána) og vildi að hún héti Guðrún í höfuðið á sér. Þetta þykir mér dónaskapur og er á móti öllu því sem ég stend fyrir, trúi á og var alin upp við að væru góðir mannasiðir.
Þar fyrir utan þá er hún þannig kona að hún skipar manni fyrir að standa eða sitja eða fara eða koma eða taka myndir eða bara ég veit ekki hvað og skiptir þá engu hvort það er á mínu eigin heimili eða ekki. Hún er bara svona.
Allavegana. Læt ekki bjóða mér þessa vitleysu stundinni lengur og verð ekki heima þegar þau koma í mat í kvöld. Er að fara út að borða og í bíó með Ásdísi minni:) Jei!

3/7 2015
Ég fer í fríið. Ég fer í fríið. Ég feeeeer í fríið, dudu du dom..
Er bara alveg til í vinnufrí núna eftir allt saman. Hélt upp á það með að bjóða sjálfri mér í heilunarnudd. MMmmm, það var gott:)
Þetta er sko ég og nuddarinn..
Já, eða ekki, hehe.

Thursday, July 2, 2015
2/7 2015
Guðrún Halla hélt vöku fyrir okkur í alla nótt.
Og ég er í vinnunni og á að vera vinna.
Langar að drepa eitthvað.
Ég veit að ég er ekki slæm manneskja en ég þarf frí frá börnunum. FRÍ. NÚNA.

1/7 2015
Góður dagur en mikið ofboðslega þarf ég frí frá börnunum.
Ég er alveg búin að sætta mig við það að vera fara í frí en mikið sem ég þarf frí frá börnunum. Ég þarf frí frá börnunum en ekki að vera fara í frí með börnunum.
Ég hvæsti bara á þau í gær. Hef ekkert að gefa þeim akkúrat núna.
Ég ætti kannski bara að skilja. Begga vinkona sem er ný skilin segjast vera miklu betri móðir núna eftir að pabbinn er með strákana viku og viku. Hún sem sagt fær langþráð frí og er úthvíldari fyrir vikið þegar börnin koma aftur til hennar. Og þá actually hlakkar hún til að hitta þau aftur.
Ég aftur á móti er svo samdauna þessum börnum af því ég fæ engan frið frá þeim að ég hef bara ekkert að gefa þeim lengur nema pirring.
Og hvað gerir Svanur? Hann bara bætir í hópinn og kemur með fleiri börn. Ekki alveg það sem úrvinda móðir þarf á að halda.
Ég geri mér alveg grein fyrir því að þetta blogg er ekkert nema eitt stórt ÉG en hey, þetta er mitt blogg og ég skrifa það sem mér sýnist á það.
Helvítis.
#úrvinda #getekkimeir

Subscribe to:
Posts (Atom)