Sunday, July 5, 2015

5/7 2015

Gærkvöldið var æðislegt.

Við Ásdís fórum út að borða á Vegamót og svo í bíó á myndina Spy með Melissu McCarthy, Jude Law og fleirum.

Myndin var ÆÐI. Svo akkúrat það sem ég þurfti og kannski líka Ásdís. Bara að horfa á bandaríska gamanmynd sem er alveg ógeðslega fyndin. Þetta var svartur húmor. Fíla hann.

Það var þarna atriði alveg í blálokin sem ég bókstaflega grenjaði af hlátri yfir. Tárin láku og ég bara gat ekkert að því gert. Mikið ofboðslega var það gott!

Dagurinn í gær byrjaði á yogatíma. Það var nýr yogakennari sem var með tímann og hún var að tala um að við þyrftum stundum að gera það sem væri best fyrir okkur sjálf svo að við gætum gefið meira af okkur til okkar nánustu. Hún talaði um hvað það væri mikilvægt að elska okkur sjálf svo að við gætum elskað aðra meira o.s.frv.

Ég er bara alveg sammála.

Ef ég hefði verið heima með tengdó skipandi mér í allar áttir hefði það ekki verið í anda sjálfskærleika og það hefði ekki verið neinum til góðs. Ég þurfti klárlega að sleppa út úr prísundinni í eina kvöldstund. Stundum er það líka besta meðalið.

Peace.


No comments: