Monday, July 20, 2015

18/7 2015

Ég var svo ótrúlega heppin (og það hefur eflaust bjargað lífi mínu) að Svanur fór út úr bænum með börnin. Ég bara flaut um á bleiku skýji í algerri alsælu. Hver þarf áfengi eða eiturlyf þegar til eru barnlausar nætur? :)

Fór þess vegna barnlaus í barnaafmæli sem var mjög skrýtið. Það hafði líka skrýtin áhrif á mig að vera svona barnlaus innan um fjölskylduna. Fór að sakna minna barna sem var mjög skrýtið.

Mér var farið að líða virkilega illa yfir útganginum á íbúðinni sem var alveg á hvolfi eftir krakkana. Ákvað að taka til og flokka smádót krakkana sem er nú eiginlega bara Stefáns.

Leigði nýju heimildarmyndina um Kurt Cobein heitinn (söngvara Nirvana.) Úff, fannst átakanlegt að sjá hvað manninum hefur liðið illa. Og ég er greinilega orðinn gömul því mér leist ekki neitt á ruglið sem þau voru í. Shit hvað þau hafa verið í miklu rugli. Manni varð bara óglatt.

En vá, hvað maðurinn var mikill snillingur. RIP elsku Kurt.

No comments: