Sérvitna húsmóðirin varð sérvitrari í dag.
Er að prufa einhvern hreinsunarkúr sem ég fann á netinu sem á að hreinsa eiturefnin út og hreinsa ristilinn. Þetta á að vera rosa gott fyrir meltinguna. Maður blandar sem sagt 3 dl af vatni saman við 1/10 matskeið af Cayanne pipar dufti og 2 matskeiðum af maple hunang og safa úr hálfri sítrónu. Maður á að drekka 5-8 glös af þessu í 10 daga og ... ta da!
En hvað það væri gaman ef ég myndi þá umbreytast í fegurðardrottningu með rennisléttan maga og þéttari brjóst. Mmmm....
Krossa putta! :)
Ég tek sem sagt járndrykk kvölds og morgna, svo magnesium drykk og núna þetta.
Það er allavegana von mín að þetta allt bjargi mér úr þessu orkuleysi. Sterkari og sterkari með hverjum deginum. Samt ekki vinnufær alveg strax...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment