Wednesday, July 8, 2015

7/7 2015

Ja hérna hér.

Þessi dagur var rosalegur. Grunaði ekki þegar ég fór út í daginn, á 2. degi í fríi, að ég myndi enda á spítalanum og ekki getað labbað. Fárveik.

Úff. Hafði ákveðið að tríta mig með að fara í fótsnyrtingu. Ég er mikið berfætt á sumrin og fæturnir voru orðnir fullir af siggi (meðfram hælunum) og svo var ég með eitthvað vesen undir annarri stóru táni, líkþorn sem ég hafði eitthvað verið að plokka í. Þetta var svona fótaaðgerða - bla. Á Langholtsveginum.

Anyways, mér byrjar að líða illa í stólnum. Er óglatt, langar að gubba og það næsta sem ég veit er að ég ranka við mér með tvær fótaaðgerðakonur yfir mér að reyna að vekja mig. Þá hafði liðið yfir mig.

Úff. Gat ekki keyrt heim. Bið Svan um að ná í mig. Hann fer með mig á heilsugæsluna og þá líður mér enn verr út af lækna- og nálafóbíunni minni. Kem þar inn og sé mig í speglinum, steingrá í framan. Fæ að leggjast og get varla opnað augun. Læknirinn sendir mig á bráðamóttökuna með læknabréf. Svanur skutlar mér þangað.

Mér líður mjög illa þar og þegar kemur að mér (bara svona hálftíma bið eða eitthvað) fæ ég að leggjast og er bara rúllað inn í herbergi. Dúsa þar í 3 tíma þangað til niðurstaðan úr blóðprufunni kemur. Var ekki svo blóðlítil að þurfa blóðgjöf en er sem sagt blóðlítil og lág í járni. Á mjög bágt þarna og get engan veginn staðið upp. Dett næst um því niður þegar ég má loksins fara- á hjúkrunarkonuna. Dett á hana og held mér varla uppi. Stefán Máni sér þetta:/

Er samt mjög stolt af mér að hafa meikað blóðprufuna (fékk reyndar ógleðistöflu fyrst) og var svo með eitthvað á þessu svæði í svona tvo tíma. Úff.

Tekur á að skrifa þetta. Next up: að láta mér batna.

Er að missa blóð á einhvern hátt. Á að fara í magaspeglun (sem ég hef 0% áhuga á) og svo á ég að skila hægðum eitthvert svo hægt sé að skoða hvort blóð sé í þeim (það hljóta að vera svo margir brandarar sem hægt er að búa til úr því scenario-i en mér dettur enginn í hug akkúrat núna..)

Allavegana, dagurinn endaði á því að ég er hérna heima næstum því alveg orkulaus og fæ mér hvað í kvöldmatinn? Pizzu! Frá Dominos!

Það hefur sko ekki gerst í svona tvö ár eða eitthvað. Slíkt var orkuleysið.

Er líklegast að missa of mikið blóð þegar ég fer á túr. Omg.

No comments: