Las merkilega grein á hinu alræmda interneti í fyrradag.
Auðvitað þýðir það ekki að greinin sé sönn en allavegana. Minnir að hún hafi verið á síðunni spiritscience.com eða eitthvað álíka. Hún fjallaði um Magnesium og skv. henni þjáumst við öll af magnesium skorti sem er þvílíkt nauðsynlegt eliment/mineral. Þarna sagði að þessi skortur kæmi fram í öllum helstu kvillum sem hrjáir okkur mannfólkið eins og meltingarvesen (harðlífi), skapsveiflur, þunglyndi, kvíði, Over Compulsive Disorder og fleira og fleira.
Mér fannst þetta merkileg grein og passa mig á að fá mér tvo bolla af magnesium dufti (í soðið vatn) kvölds og morgna núna. Keypti mér einhvern tímann magnesium duft í Krónunni en held að þetta fáist út um allt núna.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment