Jæja, það er allavegana hægt að líta á þetta sem verðugt verkefni - að hjúkra sjálfum sér til heilsu aftur.
Er búin að fá mér minnst 5 skammta af járni í dag í mismunandi formi. Í glæravökva forminu, blóðmör forminu, rauðrófu, járnfroðutafla og járntafla.
Koma svo járn!!
Sunday, December 27, 2015
25/12 2015
Kláraði þessa bók:
Synd að geta ekki gert hjörtu á þetta lyklaborð því ég myndi setja endalaus hjörtu hérna. Elska þessa bók.
Leist ekkert á hana fyrst þar sem hún er í sendibréfaformi og maður var ekki alveg að átta sig á hver var hvað. Þessi bók gerist eftir hernámið í Guernsey sem er eyja og þó að þessi bók sé þýdd yfir á íslensku skynjar maður breskuna í gegnum þýðinguna.
Í kringum svona miðja bókina kolféll ég og grenjaði og grenjaði yfir henni. Það þýðir í mínum bókum að bók er góð. Ég glotti líka mikið og brosti út í annað. Ég tímdi ekki að klára hana svo ég treinaði mér hana síðustu dagana.
Og auðvitað var þetta happy ending. Ég er alger sucker fyrir ástarsögum. Ætli það sé ekki vegna þess að í alvöru lífinu er sagan ekki ástarsaga heldur bara þrotlaust strit með börn og buru. Það er kannski full svartsýn sýn en......

Friday, December 25, 2015
24/12 2015
Aumingja ég.
En sem betur fer leið mér betur. Fékk mér járn og meira járn. Ferðin í kirkjugarðana hjálpaði. Gott að fá frískt loft eins og alltaf.
Náði að vera nokkuð eðlileg hjá foreldrum mínum á aðfangadag. Þetta er allt að koma. Koma svo járn!
Gleðilega hátíð:)

23/12 2015
Úff. Ekki góður dagur.
Sá til þess að öryggisvörðurinn við hliðið í Lyfju Lágmúla hefði eitthvað að gera og féll í yfirlið og hrundi í gólfið. Það var ekki góð skemmtun.
Hafði mannað mig upp í að láta mæla hemóglúbínið í þess til gerðu herbergi þarna en ég bara er með nálafóbíu dauðans eins og sést. Og þetta var bara smá stunga í puttann.
Kom í ljós að ég er ekki einu sinni búin að ná mér í neðsta mark skalans sem maður á að vera í. Úff.
Ég var rosa slöpp eftir þetta yfirlið. En ekki eins slöpp og síðast. Þetta er allt á uppleið. Verð bara að gúffa í mig járni og fá mér svo meira járn.
Guð blessi mig. #aumingjaég

22/12 2015
Þennan dag náði jólastressið tökum á mér.
Ætlaði að passa mig á því og keyra varlega framhjá öllu svoleiðis en Bónusferð dauðans í Holtagarðana gerði út um það.
Upplifði mig sem eins og í stríðsástandi og komst hvorki lönd né strönd. Keypti frosinn saltfisk í tómu rugli og veit ekkert hvað ég á að gera við hann núna. Kom hálftíma of seint til kíró en komst að og fékk hnykkið mitt sem var gott:)

21/12 2015
Nei sko.
Fatta það ekki fyrr en núna að þessi dagsetning speglast: 2112. Elska svoleiðis:)

Sunday, December 20, 2015
19/12 2015
Dáldið ótrúlega ánægjulegt gerðist. Og ótrúlegt.
Maðurinn minn sýndi því í alvörunni skilning að ég þurfti frí frá börnunum og fór út með þau. Hann í alvörunni skyldi neyð mína og nauðsyn þess að losna við þau í smá stund.
Þetta getur verið svo mikið brjálæði að vera alltaf með þau ofan í sér.
Það er svo augljóst að maður verður betri mamma af því að fá mömmufrí stöku sinnum. Ó, elsku Bali. Bráðum hittumst við:) #ogþáverðaskoaldeilisenginnbörnóneióneiónei #mammaþarffrí

Friday, December 18, 2015
18/12 2015
Leið um það bil tonni betur eftir að hafa fengið svefninn minn.
Góður dagur í vinnunni og með Eddu sinni á kaffihúsi.
Jóla hvað?

17/12 2015
Hræðilegur dagur.
Vibba þreytt og þá meina ég ógeðslega þreytt.
Svaf mega illa og rétt skreið í gegnum daginn. Mamma lenti í aftanákeyrslu af stærri gerðinni. Komst ekki í yoga.
Sumir dagar.....

16/12 2015
Góður vinnudagur.
Leynivinajólagjafaleikur í vinnunni og fundur og bla. Vinni vinni vinni vinn.

Tuesday, December 15, 2015
15/12 2015
Vandró móment....
.... þegar barn sem maður þekkir spyr fyrir framan mömmuna og vinkonurnar: "Þekkiru mig?! Hvað heiti ég?!"
Þessi elskulega stúlka er dóttir vinkonu minnar sem ég hef ekki séð lengi. Ég fraus smá og mundi það ekki en... svo mundi ég það og sagði rétt nafn. Phew!
Ef ég hefði ekki munað það þá hefði þetta verið sögulega vandræðalegt.
Þessi elsku börn! :)

Monday, December 14, 2015
13/12 2015
Mmmmm,
fór í æðislegan yogatíma um morguninn. Æðislegur kennari, Anna, var með tímann og byrjaði tímann á hugleiðingu sem talaði alveg við sálina mína.
Klárlega tími sem pússaði móðuna af ljósinu í sálinni og leyfði því að skína skærar.
Sumir tímar eru betri en aðrir. Takk Anna. You just made my week.
Ljósið í mér sér ljósið í þér.
Namaste.

Saturday, December 12, 2015
12/12 2015
Yndislegur dagur!
What a glorious day:)
Fór á skíði með Óla mínum. Þvílík sæla.
Er svo heppin með þennan dreng. Hann sýnir engin merki um að ætla að verða sama martröðin og ég var á hans aldri. 7,9,13!

11/12 2015
Oh. Þessi dagur var vibbi.
Var alla vikuna á leiðinni að fara byrja á túr.
Það er ekkert eðlilegt hvað það dregur mikið af mér þegar þessi ósköp dynja yfir. Var bara ekki viss allan daginn um hvort myndi actually líða yfir mig eða ekki og botnaði ekkert í því hvað ég var að gera í vinnunni. Var alveg rosalega slöpp og rétt komst í gegnum daginn. Samt ekki.
Þurfti að fara heim og hvíla mig fullt bara til að manna mig upp í að klára daginn. Þurfti að fara til kíró og þurfti að fara í búðina og vinna og bla bla bla.
Af hverju þetta er lagt á mann geri ég mér enga grein fyrir. Enga.

10/12 2015
Það var svo gaman hjá mér í ræktinni í vikunni:)
Í eróbikk tímunum var sú sem vanalega kennir í fríi svo að Máni snillingur var í staðinn með tímana. Æði, æði, æði.
Fór á þriðjudaginn og það var eiginlega of erfitt. Svona eins og að leysa Sudoko fyrir framan fullt af fólki. Við áttum fullt í fangi með að fylgja honum eftir og ég ruglaðist alveg nokkrum sinnum... Svo á fimmtudeginum var ég afslappaðri því hann var með sömu sporin svo maður varð öruggari og ég náði að syngja með. Hann er með svo skemmtilega tónlist líka.
Þetta er svo frábær skemmtun og útrás.
Oh Máni. Þú ert æði! :)

8/12 2015
Þetta er afmælisdagur Jóns Brynjars bróðirs.
Það er svo gott að foreldrar mínir fengu þennan gulldreng vegna þess að hann er svo æðislegur og frábær. Hann bætir okkur Tryggva bró upp. Við vorum/erum svo miklir rebellar og anarkistar eitthvað að þau átti skilið að fá einn gullkálf í þriðja kasti til að bæta hin tvö köstin upp. Aðallega mig samt. Mig grunar að Jón Brynjar sé líklegst sá eini sem gæti mögulega kosið það sama og þau.
Það hefði nú líka verið yndis að fá systur reyndar EN... maður fær víst ekki allt sem maður vill í þessu lífi....
Það hefði nú líka verið frábært ef ég hefði ekki verið eins mikill bjálfi og ég var á unglingsárunum. Ég verð restina af ævinni að bæta upp fyrir það. Það að vera svarti sauðurinn er erfitt hlutverk. En einhver verður að taka það að sér. Vona að ég geri það með stæl. So far so good.

7/12 2015
Já, það er alltaf gaman að skrifa vikuna aftur á bak frá laugardegi og muna bara ekkert hvað gerðist á þessum blessaða degi.
Jú, mætti í vinnuna og fékk nokkur afmælisknús. Það er alltaf svo yndislegt að fá knús:)

Sunday, December 6, 2015
6/12 2015
Afmælisdagurinn minn:) Til hamingju ég!
Fór í 90 mínútna hot yoga tíma og dó næstum því. Ég var alveg búin gleyma hvað þetta er erfitt:/
Allavegana, facebook gerði daginn ógleymanlegan. Það er svo gaman að eiga afmæli þarna:)

5/12 2015
"Halló, ég heiti Svava og er öryggis- og vanafíkill."
"Hæ Svava!"
Gat ekki einu sinni verið seint í heimsókn (og dekri) í gærkvöldi upp í Breiðholti. Fór bara öll að ókyrrast þegar klukkan nálgaðist miðnætti því samkvæmt venjunni er ég sofnuð þá eða allavegana komin upp í rúm. Svo átti ég fyrst að koma kl. 18 (þriggja klukkutíma hártreatment process) og þá leist mér ekkert á blikuna. Ég meina, hvað með kvöldmatinn?! Ég borða hann ALLTAF á milli 18:00 og 20:00..
Ji, hvað það er erfitt að vera svona vanafastur. Neri hendunum um símann minn þegar klukkan varð meira og meira eins og hann væri einhver öryggisventill og vinkonan pollróleg enda fannst henni ekkert tiltökumál að vera á fótum eftir miðnætti á laugardagskvöldi... Hún er nú reyndar fædd '87.
EN. Það var svo gaman! Við spjölluðum og töluðum um allt og ekkert. Þessi vinkona mín er pólsk og við unnum saman en hún er hætt núna. Ég skemmti mér svo vel:) Mömmu hennar fannst fyndið að sjá mig á hnjánum við sturtubotninn enda er "yfirmaður" hennar í vinnunni...
Fyrr um daginn var jólakaffið í vinnunni minni og ég fékk þessa veglegu matargjafakörfu í tilefni af 5 ára starfsafmælinu mínu:) Hamborgarahryggur, reyktur lax og ég veit ekki hvað og hvað í körfunni. Ostar og kex. Takk fyrir mig Hreint:)

4/12 2015
Ég er nú farin að hafa þónokkrar áhyggjur af þvílíkt voldugum grýlukertum sem hanga meðfram öllu þakskegginu á blokkinni heima. Svo er líka snjóhengja sem lafir fram af þakinu hjá hinum stigaganginum.
Vona af öllu hjarta og þetta detti allt saman af um miðja nótt þegar enginn er á ferli.

3/12 2015
Er alveg heilluð af #Nakinníkassa.
Það sem ég get horft á hann gera ekki neitt. Ég hef alveg misst af því þegar hann pissar,kúkar eða rúnkar sér.
Finnst þetta rosa áhugavert...

Tuesday, December 1, 2015
1/12 2015
Núnú,
setti Nirvana aftur á fóninn í bílnum í gær og fór bara að grúva feitt með og fílaði þetta allt í einu aftur.
Það er nú gott að vita til þess að maður er ekki alveg dauður í æðunum. Gott.
Rock on

30/11 2015
"Can you pour me a cup of tea butler? Surely ma'ma would also want one.."
Horfði á Downton Abbey í Oz appinu og er alveg með á heilanum hvernig ein af löfðunum eða hvað þær nú eru þarna á setrinu talar. Hún segir alltaf papa og mama og er alveg ofboðslega snobbuð í tali. Hún er nú reyndar besta skinn en það er komið undir skinnið á mér hreimurinn hennar og talsmátinn.
Ég er í ofanálag að lesa breska bók þar sem breskan fær að njóta sín og breskur húmor skín í gegnum línurnar..
Bloody marvelous I must say.

29/11 2015
Omg.
10 stiga gaddur og fjölskyldan fór niður í bæ til að horfa á ljósin kveikt á Oslóartréinu í fyrsta skiptið. Það var allt gott og vel fyrir utan nístandi kulda og að Stefán Máni datt í tjörnina fyrir utan ráðhúsið. Vatnið þar er víst heitara en út á stóru tjörninni.
Svanur skundaði með drenginn heim og ég skundaði með stelpurnar að blessuðum tréræflinum.
Shit hvað það var kalt!

28/11 2015
já.. rosa frost og búið að kyngja niður sögulega miklu magni af snjó þegar frúin steig út á plan. 7 stiga frost.
Að sögn Svans var víst kostulegt að fylgjast með mér reynandi að koma bílnum úr plani. Hafði gleymt vettlingum og var svo kalt á puttunum að ég bara gat varla staðið í þessu, þurfti líka að vaða skaflana... En í zumba ætlaði ég og í zumba fór ég.
Merkilegt hvað einbeittur vilji fleytir manni langt.

27/11 2015
Núna er frúin komin í jólagírinn og snattast út um allan bæ kaupandi jólagjafir.
Á þessum kyngimagnaða föstudegi (var ekki fullt tungl?) réðst ég í jólakortagerðina og er bara næstum búin. Ég er eitthvað öll voða hress eftir að járnið er farið að kikka inn..

Subscribe to:
Posts (Atom)