Friday, December 25, 2015

23/12 2015

Úff. Ekki góður dagur.

Sá til þess að öryggisvörðurinn við hliðið í Lyfju Lágmúla hefði eitthvað að gera og féll í yfirlið og hrundi í gólfið. Það var ekki góð skemmtun.

Hafði mannað mig upp í að láta mæla hemóglúbínið í þess til gerðu herbergi þarna en ég bara er með nálafóbíu dauðans eins og sést. Og þetta var bara smá stunga í puttann.

Kom í ljós að ég er ekki einu sinni búin að ná mér í neðsta mark skalans sem maður á að vera í. Úff.

Ég var rosa slöpp eftir þetta yfirlið. En ekki eins slöpp og síðast. Þetta er allt á uppleið. Verð bara að gúffa í mig járni og fá mér svo meira járn.

Guð blessi mig. #aumingjaég

No comments: