Kláraði þessa bók:
Synd að geta ekki gert hjörtu á þetta lyklaborð því ég myndi setja endalaus hjörtu hérna. Elska þessa bók.
Leist ekkert á hana fyrst þar sem hún er í sendibréfaformi og maður var ekki alveg að átta sig á hver var hvað. Þessi bók gerist eftir hernámið í Guernsey sem er eyja og þó að þessi bók sé þýdd yfir á íslensku skynjar maður breskuna í gegnum þýðinguna.
Í kringum svona miðja bókina kolféll ég og grenjaði og grenjaði yfir henni. Það þýðir í mínum bókum að bók er góð. Ég glotti líka mikið og brosti út í annað. Ég tímdi ekki að klára hana svo ég treinaði mér hana síðustu dagana.
Og auðvitað var þetta happy ending. Ég er alger sucker fyrir ástarsögum. Ætli það sé ekki vegna þess að í alvöru lífinu er sagan ekki ástarsaga heldur bara þrotlaust strit með börn og buru. Það er kannski full svartsýn sýn en......
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Heyrðu! Ég las þessa bók fyrir milljón (kannski 7) árum og dýrkaði hana líka. Sammála þér líka með happy endings. Eftir meðal dag hef ég enga orku í eitthvað böl í lok dags.
Post a Comment