Saturday, December 12, 2015

11/12 2015

Oh. Þessi dagur var vibbi.

Var alla vikuna á leiðinni að fara byrja á túr.

Það er ekkert eðlilegt hvað það dregur mikið af mér þegar þessi ósköp dynja yfir. Var bara ekki viss allan daginn um hvort myndi actually líða yfir mig eða ekki og botnaði ekkert í því hvað ég var að gera í vinnunni. Var alveg rosalega slöpp og rétt komst í gegnum daginn. Samt ekki.

Þurfti að fara heim og hvíla mig fullt bara til að manna mig upp í að klára daginn. Þurfti að fara til kíró og þurfti að fara í búðina og vinna og bla bla bla.

Af hverju þetta er lagt á mann geri ég mér enga grein fyrir. Enga.

No comments: