Það var svo gaman hjá mér í ræktinni í vikunni:)
Í eróbikk tímunum var sú sem vanalega kennir í fríi svo að Máni snillingur var í staðinn með tímana. Æði, æði, æði.
Fór á þriðjudaginn og það var eiginlega of erfitt. Svona eins og að leysa Sudoko fyrir framan fullt af fólki. Við áttum fullt í fangi með að fylgja honum eftir og ég ruglaðist alveg nokkrum sinnum... Svo á fimmtudeginum var ég afslappaðri því hann var með sömu sporin svo maður varð öruggari og ég náði að syngja með. Hann er með svo skemmtilega tónlist líka.
Þetta er svo frábær skemmtun og útrás.
Oh Máni. Þú ert æði! :)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment