Fertug.
Mér líður eins og ég sé með sjúkdóm. Einhvers konar hrörnunarsjúkdóm.
Hvað getur maður gert að því þó dagarnir komi og fari og svo er maður bara fertugur allt í einu?
Líður eins og þetta sé blótsyrði. Fertugur. Var að lesa komment á frétt á visi.is minnir mig þaŕ sem Emmsjé Gauti er að dissa Reykjavíkurdætur. Ein kommentar: hva, ertu orðinn fertugur eða eitthvað?
Blaut tuska. Andlit. Særindi innra og ytra.
Ái.
2 comments:
Ég verð að segja að mér finnst æðislegt að vera fertug. Ég ætla kannski ekki að tína til alla kostina en það hjálpar mér mikið að hugleiða, vera í núinu, og, það allra mikilvægasta: sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt. Mamma hennar Siggúar, Margrét, sagði okkur einu sinni að það væri svaka mikilvægt að *sættast við hversdagsleikann*. Ég gríp í þessi orð reglulega.
Ég samgleðst þér innilega Tinna mín. Ég sakna þín❤ Jú, hversdagsleikinn og núið. Elska bæði. Krísan líður væntanlega hjá. Að vera fertugur hefur sína kosti;)
Post a Comment