Fórum með dúlluna okkar í 2 og 1/2 árs skoðun um daginn sem er nú ekki í frásögur færandi nema það að snúllinn okkar þarf að mæta aftur takk fyrir. Hann náði ekki prófinu.
Enda er hann tveggja ára og er ekki alveg kominn á þann stað í veröldinni að geta útskýrt fyrir bláókunnugri konu í slopp af hverju drengurinn á myndinni grætur þegar brotið glas er á gólfinu. Eða til hvers úlpa er. Eða hvar maginn sinn er.
Stupid fokking gáfnapróf fyrir tveggja ára sálir.
DO I LOOK BOVVERED??!!
Pirruð og móðguð móðir.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment