Monday, November 21, 2016

24 tímar án þess að kvarta

Ég las þetta í morgun á snappinu hjá einni. Svona ágæt áskorun inn í daginn. Þetta leit út fyrir að vera mjög auðveld áskorun. Mjög.

Svona jákvæð manneskja eins og ég? Að kvarta ekkert í 24 tíma? Ekki málið.

Ég féll kl. 13:15 sirka.

En þá er bara að hisja upp um sig brækurnar og reyna meira og aftur.

:)

No comments: