Það sem maður er stundum heppinn í óheppninni.
Í dag átti ég fund varðandi framtíð mína. Fundurinn var kl. 11 og eins og oft áður var ég að drífa mig út þegar ég var að leggja af stað. Næ í hjólið niðrí geymslu og bruna af stað. Þegar ég er komin á staðinn fatta ég að ég er rennandi blaut í klofinu:/ Útvortis!!
Óli minn sem sagt sem notar hjólið mitt lika hafði gleymt því úti í eina eða tvær nætur og svo setti ég það niðrí geymslu í gær. Sá bara ekki að hnakkurinn var gegnblautur. Var síður að spá í því í morgun.
Allavegana. Þetta var það mikil bleyta að ég hefði ekki meikað fundinn svona. Sem betur fer var viðmælandinn veikur! Eða hafði hringt sig inn veika. Ég er ekkert að vona að manneskjan sé veik en þið vitið...
Ég gat því brunað aftur heim. Ætlaði að koma við í VÍS og ná í húfur á krakkana en nei. Þetta var neyðartilfelli!
Ji, hef sjaldan drifið mig eins mikið upp stigana hérna í Stigahlíðinni og þegar ég kom heim.
Úff! Blautt!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

4 comments:
Vá! Með hverjum átti fundurinn að vera og ertu að fara aftur seinna? En spennandi að eiga fund um framtíð sína. Mig langar líka í þannig fund.
He, he. Ég er kannski full háfleyg á köflum. Það sem ég meinti nú bara var að ég átti fund með námsráðgjafa í Fjölbrautaskólanum í Ármúla. Nuddskólinn er kominn inn í Heilbrigðisskólann sem er kenndur þarna. Ég er sem sagt að fara læra nudd eða það er planið og mig langar til að raða náminu niður og plana og svona. Eftir áramót verð ég sem sagt í fullt af bóklegum fögum í fjarnámi. Knús á þig Tinna:* P.s. var að horfa á Trump í 60 mínútum. Hann er kannski ekki alslæmur þó slæmur sé...
Nei, mér finnst þú réttilega fleyg. Það er um að gera að kalla hluti sínum réttu nöfnum, og fundur er fundur.
Já einmitt. Þannig leið mér líka með þennan fund;)
Post a Comment