Thursday, January 31, 2008

Úr steikjandi hita í nístandi kulda

Kom heim í gærkvöldi. Það er ansi undarleg tilfinning að fyrir rúmlega sólarhring síðan lá ég í sólbaði á Tenerife en núna er ég vinnandi í skrækjandi krakkaskara og það er kalt.

Oftast þegar ég kem heim frá útlöndum hlakka ég til að koma heim. En ekki í gær. Bara alls ekki. Mig langaði bara ekkert heim. Við höfðum það svo rosalega gott úti að ég hefði viljað vera í tvær vikur í viðbót. At least.

En nei. Nú tekur blákaldur raunveruleikinn við og fríið er búið:/

EN... ég er að fara í mega dekur í spa-inu í World Class á laugardaginn. Við erum að tala um 3,5 klukkutíma í nudd og dekur og svo líka aðgangur að spainu :-) (ammæligjöfin frá kallinum) þannig að maður hefur alveg eitthvað til að hlakka til:)

Set inn myndir frá ferðinni í kvöld eða á morgun..

Later!

2 comments:

anna lara said...

Hae loksins skrifa eg sma komment! Sakna tin lika mikid og hlakka til ad koma heim. hafdu tad gott, love

Svava said...

Ok, darling!