Tuesday, October 14, 2008

Ég nenni ekki að horfa á fréttir

Þetta ástand á þessari blessaðri eyju er orðið eins og slæmt trip eða downward spiral eða eitthvað álíka. Maður kveikir ekki á útvarpi eða sjónvarpi öðruvísi en að þurfa hlusta á kreppuvæl og mér finnst þetta orðið hálf niðurdrepandi.

En eftir situr það sem skiptir mestu málið. Fólkið og fjölskyldan. Það besta í lífinu er sannarlega ókeypis og það er meðal þess sem má læra af þessari kreppu. Ég ætla rétt að vona að eftirlitskerfi þess lands batni til muna eftir þessa dýfu í efnahagslífinu en það er auðvitað ótrúlegt hvernig hrun bankanna gat gerst. Hverjum datt í hug að einkavæða bankanna? Sumt á að vera heilagt og ekki í höndunum á ævintýramönnum og glönnum.

En núna eru konur komnar í bankanna til að þrífa upp allt messið eftir kallanna. Manni líður aðeins betur..

5 comments:

Tinnsi said...

Mér fannst einkavæðing bankanna eitt af því skynsalmegasta sem ríkistjórnin gerði. Og ríkisvæðingin síðan það heimskulegasta.

Svava said...

Ég er sammála bankamálaráðherra/viðskiptaráðherra og finnst að ríkið eigi allaveganna að eiga 1/3 í bönkum.. Ég skil samt ekki alveg af hverju menn eru fylgjandi einkavæðingu bankanna. Er ekki takmarkið þá alltaf gróði eigendanna? Og á hverjum lendir það? Nú viðskiptavinum bankans auðvitað..

Tinnsi said...

Jah, takmark starfsfólksins er að búa til peninga. Eigendurnir eru bara hluthafar, ég og þú, sem kaupum hlutabréf í Glitni. Starfsfólkið reynir að standa sig vel og búa til peninga fyrir bankann til að það fái vel borgað. En þannig hagnast líka fólkið í landinu því bankinn á peninga sem hann getur lánað fólkinu. Og líka borgað háan skatt. Í ríkisreknum fyrirtækjum/stofnunum er alltaf eitthvað fyrirkomulag sem gerir starfsfólki erfitt að fá vel borgað og því nennir það kannski ekki að leggja jafn mikið á sig. Skiljanlega því það skiptir engu máli fyrir það fjárhagslega. Fólk verður að hafa incentive til að gera góða hluti. Þannig er fólk bara flest og því virkar kapítalismi svaka vel til að stuðla að sterkum efnahag. Ég held að það sé eitthvað sem við verðum að sætta okkur við. Eða, ekki sætta okkur við heldur taka opnum örmum og nýta okkur. Við vinstrimenn meina ég.

Svava said...

Neiiii!!! Það er eitthvað við þetta sem mér finnst svo profoundly wrong. Því þá er alltaf einhver fámennur hópur sem fær mestallan peninginn. Viltu spá í hvað þessir bankastjórar einir og sér hafa verið með í laun síðustu árin? Ég meina þeir fá borgað mörg hundruð milljónir bara til að byrja að starfa í bankanum yfir höfuð! Nei, nei, nei. Það er bara bull og vitleysa.

Og það eiga ekki allir hlutabréf í banka.

Svava said...

Hmm. Þetta hefði mátt vera orðað smekklegra og dömulegra but ... I'm sticking to my words.