
ég er að lesa svo æðislega bók:) Tók Sölku Völku eftir nóbelskáldið okkar á bókasafninu og nýt hvers orðs. Þvílíkt snilldarverk er þessi bók! Síðasta bók sem ég tók voru nefnilega mistök. Ég naut þeirrar bókar ekkert og komst að því þegar ég byrjaði á henni að ég var búin að lesa hana áður:/ Vil ekki nefna þá bók á nafn þar sem ég fíla ekki að dissa bækur eða höfunda á internetinu. Ég kýs frekar að hrósa fólki og verkum þeirra á þeim vettvangi.
Það er svo gott að lesa góða bók:) Hlakka til að vakna á morgun og lesa nokkrar blaðsíður.
Later.
No comments:
Post a Comment