Núna er mörgæsaleikurinn byrjaður aftur. Þarf að byrja nýja árið með heimsókn til rassasjúkraþjálfarans til að koma rófubeininu aftur á réttan stað.
Smá sjálfsvorkunn í gangi. Mikið verður nú gott þegar blessað barnið kemur í heiminn og ég get hreyft mig eðlilega á ný. Amen.
Sunday, December 30, 2012
Friday, December 28, 2012
Léttir réttir
MMmmmm... er byrjuð að elda í nýja eldhúsinu. Það er æði.
Í gær eldaði ég uppskrift úr bókinni Léttir réttir. Þetta er ein af Hagkaups uppskriftabókunum. Þessi bók er með uppskriftunum hennar Rikku og lofar góðu.
Eldaði fiskrétt í gær. Löngu með kókos og karrý. Það var æðislega gott:) Svo skrifa ég ummæli og gef einkunn inn í bókina.
Langar obbosens mikið að fara baka en ætla samt í kvöld að elda kjúklingarétt með döðlum og fleira gómsæti,
Yummí

Saturday, December 15, 2012
Guðrún Ögmundsdóttir - hjartað ræður för
Las þessa bók um daginn og naut hverrar blaðsíðu.
Þessi bók er auðlesin (allavegana miðað við ævisögu Guðna Ágústssonar) og þar af leiðandi ánægjuleg. Mér fannst einstaklega forvitnilegt að lesa um lífshlaup Guðrúnar og var frásagnarstíllinn mjög þægilegur. Lesandinn kynnist viðfangsefninu á auðveldan hátt og fær góða innsýn í hvernig persóna Guðrún er. Mjög góð persóna sem sagt sem er mikil jafnaðarmanneskja og stendur ávallt upp fyrir lítilmagnann. Það er augljóst að hún hefur oft fórnað sér fyrir góðan málstað og er mikill mannvinur.
Frábær bók:)

Tuesday, November 20, 2012
hrós og last dagsins
Hrós dagsins fær sjúkraþjálfarinn sem setti putta efst í rassaskoruna á mér og smellti rófubeininu á réttan stað. Last dagsins fá stjórnvöld í Ísrael.
Friday, November 9, 2012
anal
nei, mamma og pabbi. Ég ætla ekki að fara skrifa um endaþarmsmök..!
Veit ekki af hverju ég er ein af þessu fólki sem gerir alltaf það sama. Þegar ég skokkaði þá fór ég t.d. alltaf sama hringinn við sömu tónlistina sem var búin að vera í ipodinum í mörg ár. Mér datt ekki einu sinni í hug að fara öfugan hring..
Enda oftar en ekki á sama veitingastaðnum ef ég fer út að borða. Fer á sömu staðina og geri basically það sama dag eftir dag eftir, alveg í miðjunni á þægindahringnum.
Núna þegar ég er ófrísk, geng ég sama hringinn svona næstum því á hverju kvöldi áður en ég fer að sofa. Og auðvitað er ég bara að flytja aðeins neðar í götuna! Ég meira að segja sé íbúðina héðan. En ekki hvað?
Mikið væri nú gaman að brjótast aðeins út úr hringnum...!
Er það ekki kallað að vera "anal" á ensku þegar maður er svona ansi einstrengingslegur og hversdagslegur?

Thursday, November 8, 2012
Gvendur
grunaði ekki Gvend. Óli er búinn vera heima í 5 mín eftir vikudvöl hjá pabba sínum og hann er þegar búinn að sýna mér hvað hann vill í ToysRus bæklingnum;)
Tuesday, October 23, 2012
Guðni - af lífi og sál
Ég kláraði loksins þessa ævisögu eftir Sigmund Erni Rúnarsson síðustu helgi. Það væri bæði gott og slæmt því að þótt að ég nyti þess að lesa bókina þá var hún líka þung og þykk.
Á bókasafninu þar sem ég leigði hana lenti ég í vandræðum og þurfti að framlengja henni um mánuð því ég var svo lengi að lesa hana en það reyndist ekki nóg og endaði þetta með því að ég var ekki búin að klára hana á tilsettum tíma og þurfti að borga 600 kr í sekt þegar ég loksins náði að klára hana! Sigmundur! Guðni!
Mér fannst ágætt hvað Sigmundur fór í djúpt í bakgrunninn og það var sérstaklega ljúfsárt að lesa um fátæktina sem Ágúst, faðir Guðna, ólst upp við. Baðstofulífið á Brúnastöðum í risastórum systkinahóp var líka mjög athyglisverð lesning en helst til fór Sigmundur allt of djúpt í smáatriði sem kom sögunni lítið við og er þá helst að nefna fólk sem kom rétt inn í líf Guðna en var nafngreint allt með fullu nafni og hvaðan þau komu. Þetta gat verið rosalega þreytandi sem og ítarlegar lýsingar á alls konar stöðum á Suðurlandi þaðan sem Guðni er kemur. Að mínu mati hefði endilega mátt skera allt það í burtu. Bókin reyndist (allavegana þessum lesanda) of þung og ítarleg.
Finn mjög mikinn mun á þessari bók og bókinni sem ég er að lesa núna (ævisögu Guðrúnar Ögmundsdóttur) en ég flýg í gegnum þá bók sem er afskaplega gott og þægilegt! Hún heldur mér alveg við efnið og ég les hana líka eftir vinnu. Ævisaga Guðna var þannig að hún var of þung til að lesa líka eftir vinnu, tók frekar langar lestrarlotur um helgar.
Sem sagt, mjög áhugaverð ævisaga en allt of þung!

Friday, October 19, 2012
Sykur
er smeyk við alla þessa auknu sykurneyslu.
Ef maður spáir í súrmjólkinni sem er bragðbætt og ab-mjólkinni þá kemst maður fljótt að því að sykur er innihaldsefni nr. 2. Í einu kókglasi eru um 8 sykurmolar.
Ég tengi þetta við aukna tíðni krabbameins. Fyrir um 50 árum síðan greindust ekki svona margir með þetta mein. En núna, þá greinast mun fleiri.
Það er samt erfitt að forðast sykurinn því honum hefur verið bætt við í hin ýmsu matvæli án þess að maður taki svo mikið eftir því. Maður heldur að maður sé að borða hollt þegar maður fær sér súrmjólk með karamellubragði eða ab-mjólk með perubragði EN þarna er sykurinn.
Ef maður spáir svo í því hvað börn borða mest af þá eru þau einmitt sólgin í t.d. bragðbættan morgunmat, svala, pönnukökur með sykri út á og fleira í þá veruna.
Vona að þessi kenning með sykurinn og krabbamein byggi ekki á mjög traustum stoðum en ef svo er þá verður maður að fara grípa í taumana á matarvenjum á heimilinu!

Tuesday, October 16, 2012
Seinfeld
Mér verður oft hugsað til eins atriðis í þáttunum Seinfeld. Þá hringir símasölumaður heim til hans og truflar ógurlega. Á snilldarlegan hátt losar Seinfeld sig við hann úr símanum með að segjast ætla að hringja tilbaka í sölumanninn heima. Eitthvað fát kemur á sölumanninn sem neitar þessu og þá segir Seinfeld. "Nú, viltu ekki vera truflaður heima?!" og skellir á.
Eitt þessara skipta var í kvöld þegar mér alls ókunnug kona hringir í mig og truflar mig ógeðslega mikið með einhverju helvítis könnunarkjaftæði. Ég blóta því hún hringir á versta mögulega tíma þegar ég og sonur minn erum að læra saman og erum akkúrat að byrja á ritgerð. Ég sagði þessari blessuðu konu að hún væri að trufla mig en hún var ekkert að afsaka sig og blaðraði bara áfram, blablabla..
Helvítis. Hvers á maður að gjalda?
Ég fékk nefnilega óumbeðið póst inn um lúguna þar sem mér var tjáð að ég hefði lent í úrtaki hjá Félagsvísindastofnun þar sem verið væri að kanna afdrif háskólamenntaðs fólks, hvað það væri að aðhafast núna og í hvernig vinnu það er núna og hvort það tengist náminu. Og það gefur þessari konu rétt til að trufla mig. Og hvort hún megi hringja á morgun. Ég er upptekin á morgun kona, láttu mig vera! Það sagði ég reyndar ekki en vistaði helvítis númerið sem "Ekki svara!"
Það sem mér sárnar mest við þetta bögg allt saman er að það er gulrót. Það eru einhverjir sem lentu í þessu blessaða úrtaki sem geta unnið pening, 10.000 kr minnir mig og mig minnir líka að einn geti unnið 100.000 kr. (nenni ekki að standa upp til að tékka á því.) Eða er kannski verið að fokka í manni og það er enginn peningur?!
Djöfulsins truflun. Af hverju fær maður ekki að vera í friði? Ef maður játar þessu þá kemur einhver helvítis aðili heim til manns að taka djúpviðtal við mann. Glætan að ég nenni því!
Æ, mikið er gott að blóta aðeins:)

Hvað er það við Guðna?
Áttaði mig á því um helgina að ég er með tvær bækur á náttborðinu sem ég hef verið að lesa undanfarnar vikur og þær hafa báðar eitthvað með Guðna að gera! Ein þeirra er ævisaga Guðna Ágústssonar, fyrrverandi ráðherra og formann Framsóknar (já, hann var það í smá tíma...) og hin er eftir Guðna Gunnarsson og heitir Máttur viljans.
Sem sagt, Guðni og Guðni eru á náttborðinu mínu. Er reyndar búin að vera ofsalega lengi með báðar bækurnar... Mjög góðar!

Wednesday, October 10, 2012
þúsundir ofan á milljónir tonna
stundum hryggir mannskepnan mig. Hún fjölgar sér hratt og gengur á blessuðu jörðina okkar.
Með fleira og fleira fólki koma fleiri bílar og fleiri byggingar og stórframkvæmdir. Þúsundir ofan á milljónir tonna af steypu, malbiki og öðrum þungum hlutum. Stundum hugsa ég hvort þetta rugli ekki jafnvægi jarðmöndulsins og snúningshraða jarðarinnar...
úff, allt svo þungt ha?

Tuesday, October 2, 2012
gömlu góðu joggingbuxurnar
Finnst athyglisvert að hann Óli minn (10 ára) vill oftast vera í úr sér gengnum, illa snjáðum og hnökruðum joggingbuxum sem hann á og eru með gati á í ofanálag.
Ég skammast mín fyrir þessar blessuðu buxur og er hálf miður mín vegna þessa. En barnið vill bara helst af öllu vera í þessum þægilegu buxum.
Vona bara að fólk haldi ekki að það sé e-r mega fátækt í gangi hérna hjá okkur. Það er ekki eins og þetta séu einu buxurnar hans! Hann bara vill ekki vera í gallabuxum og finnst það mega óþægilegt.
Skrýtið!

Monday, September 24, 2012
bad hair dayS
Hélt ég væri komin yfir það að vera í sálarflækju yfir hárinu mínu.
En NEI.... það er víst ekki málið.
Af hverju fæddist ég ekki fallega ljóshærð? Af hverju?!!

Monday, September 17, 2012
bad hair day. Again.
Er í millibilsástandi með hárið mitt.
Finnst allt í einu fíflalegt að eyða öllum þessum fjármunum í hárið og hreinlega tími ekki að laga rótina. Þar af leiðandi er ég með myndarlega rót í mínu litaða hári og hef eiginlega ákveðið að láta þar við sitja.
Í hippa- og yogafíling hef ég ákveðið að gefa mínu náttúrulega hári séns. Já og ég sparnaðarskyni auðvitað líka.
Stend mig að því að dást að konum sem eru með sinn eðlilega hárlit og líta þær sem eru með mikið lítað hár hornauga.
Látum nú sjá hvort ég stend við þetta...::

Tuesday, August 28, 2012
underwear, dirty
ég var búin að liggja í slökun fyrir yogatímann örugglega í svona 10 mínútur. Svo hefst tíminn og við eigum að setjast. Mér til hryllings uppgötva ég að það gægjist eitthvað neðan úr joggingbuxunum mínum sem eru gráar, stuttar og svona aðþrengdar að neðan.
Það tekur mig u.þ.b. 2 sekúndur að átta mig á því að á einhvern fáránlegan máta hafa notaðar nærbuxur, já mínar, verið ennþá í íþróttatöskunni og falið sig innan í joggingbuxunum. Omg.
Þar sem ég er aftast af því að ég er ólétt er fyrsta hugmyndin mín að læða þeim á bakvið styrktarsúlu sem er við hliðina á mér. Svo leið mér ekki nógu vel með það svo ég læði þeim (þegar yndislegi yogakennarinn) er ekki að horfa undir yogamottuna. En þá kemur bunga á hana.
Glatað! Hef eiginlega ekki lent í öðru eins í seinni tíð.
Það fór svo að ég náði að slétta aðeins úr bungunni en ji minn eini, what are the odds? Smyglaði nærbuxunum svo eftir tímann í vasann á joggingbuxunum en ég kem til með að athuga vel að þetta gerist ekki aftur!
Voða svona 13 ára dæmi en ekki 33 ára, ha?

Monday, August 6, 2012
Kvöldljósin eru kveikt
Kvöldljósin eru kveikt er safn smásagna eftir einn af mínum uppáhalds höfundum Kristínu Marju Baldursdóttur.
Verð að viðurkenna að þessi bók verður ekki í uppáhaldi hjá mér. Margar smásögur henta ef til vill einhverjum einhversstaðar en ekki mér. Allar smásögurnar eru góðar samt. Það er það sem er svo svekkjandi. Þær eru strax búnar um leið og maður er kominn inn í þær. Margir karakterar, margar mismunandi aðstæður og svo kviss bamm búmm næsta saga er líklegt til að virka þreytandi á lesandann. Alla vegana þennan lesanda hérna.
Margar of sögunum eru líka svo stuttar að í einu lestrar"sessioni" las ég um þrjár sögur. Þrjár sögur af mismunandi karakterum, mismunandi söguþráðum og svo var hver saga búin þegar maður var kominn inn í hana. Afar slítandi fyrir lesandann.
En eins og ég segi, þær voru allar góðar. Það skiptir jú máli.
Thursday, July 26, 2012
Á eigin vegum
Bók eftir sama höfund og Ljósa (Kristín Steinsdóttir.)
Ekki eins viðburðarík bók og Ljósa. Það reyndar gerist bara mjög lítið í henni. Ekki spennandi.
Hér er sögð saga Sigþrúðar, konu sem ólst upp á bóndabæ í fyrndinni. Í gamla daga, kannski fyrir um 80 árum síðan. Að því leyti er bókin lík Ljósu. Sigþrúður á ekkert sérstakt sældarlíf, móðir hennar dó þegar hún fæddi hana og sjálf missir hún barn. Viðurkenni alveg að það féllu nokkuð mörg tár hjá þessum lesenda við lesturinn. Seinni hluta ævinnar býr hún í Norðurmýrinni í Reykjavík og unir sæl við sitt.
Hún er þó alltaf að leita að uppruna sínum og er mjög upptekin að því að þekkja forfeður sína og hvaðan hún kemur. Hún lifir á blaðaútburði og ber út Morgunblaðið (eða Fréttablaðið) í dagrenningu og á svo daginn fyrir sig. Hún velur af kostgæfni hvernig hún ver hverjum degi eftir Morgunblaðinu. Hún skoðar auglýsingar um hvað er í gangi hverju sinni. Hún fer í jarðarfarir, jafnvel hjá fólki sem hún þekkir ekki neitt. Svo fer hún á listasýningar og opin hús, allt eftir auglýsingunum í blöðunum.
Allavegana, auðlesin bók. Felldi tár sem þýðir að bókin flokkast sem góð bók. En viðburðarrík og spennandi, það er hún ekki.
Tuesday, July 17, 2012
Ljósa
Ljúfsár bók. Um ástir og örlög konu sem var uppi á seinni hluta 19. aldar.
Ég elska að lesa bækur um lífið í gamla daga. Bækur sem gerast á sveitabæjum í fyrndinni. Þær eru svo rómantískar. Allt var svo einfalt þá.
Þessi sérstaka bók eftir Kristínu Steinsdóttur heillaði mig, sérstaklega fyrri hlutinn. Þessi bók endar ekki vel sem er sérstakt. En þannig er þetta stundum.
Það fá ekki allir að vera með þeim sem þeir vildu helst vera með. Lífið leikur Ljósu grátt. Hún kynntist hinnu sönnu ást. En örlögin gripu inn í og gerðu hinu ástfangna pari illmögulegt að vera saman. Lífið fór því öðruvísi en hún hefði helst viljað.
Það er ljúfsárt að lesa bók um alvöru líf en ekki líf sem er allt uppdubbað og óraunverulegt eins og það sem flestar bandarískar rómantískar gamanmyndir ganga út á. Mikið ofboðslega er ég þreytt á bandarískum rómantískum gamanmyndum og þeirra boðskap.
Sem sagt, mjög góð og hressandi bók. Ekki þessi týpíski "happy ending." Hressandi.
Monday, July 9, 2012
Um andstæðu við meininguna
(fýlupúkablogg)
Dæmi um andstöðu við meininguna er samloka sem hægt er að kaupa í búð eða sjoppu og kölluð er "heilsusamloka" en brauðið er hvítt.
Hvítt brauð er að mínu viti með því óhollara sem hægt er að nota í samloku. Það er engin næring í því og það virkar sem lím í meltingarveginn. Verð að segja að mér finnst afskaplega siðlaust að selja þessar vörur undir svona líka villandi formerkjum. Neytandinn er klárlega ekki að fá það sem nafnið á vörunni gefur til kynna að hún sé.

Thursday, July 5, 2012
Indversk prinsessa
Vinkona mömmu sagði einu sinni við mig að ég hefði að öllum líkindum verið indversk prinsessa í fyrra lífi. Það er mikið til í því.
Get ekki hugsað mér að fara á tjaldstæði til að sofa þar yfir nótt í tjaldi. EEeeuuuww. Djöfuls skrílslæti. Enginn svefnfriður. Engin hljóðeinangrun. Og ekki hægt að læsa. Minn sjúki hugur ræður ekki við þetta.
Af hverju bara ekki að finna yndælis hótel út á landi í staðinn? Skil ekki af hverju fólk hópast saman um helgar á tjaldstæðum og heldur vöku fyrir hvert öðru. Og ekkert morgunverðarhlaðborð eða sturta um morguninn. Nei, nei, nei. Meika þetta ekki.

Monday, June 4, 2012
he he
það fyndnasta sem gerðist í mínu lífi í dag var bréf sem kom inn um lúguna heima. Þetta er boðskort í 10 ára afmæli í vikunni, stílað á son minn sem er 10 ára lika. Fram kemur staðsetning, dagsetning og tímasetning veislunnar sem og símanúmer hjá ónafngreindum föður og móður ef Óli minn kemst ekki.
En það vantar undirskrift:) og Óli minn veit ekki heldur hver þetta er sem er að bjóða sér í afmælið sitt...

Monday, May 28, 2012
óafsakanlegt.
Í síðustu viku fór ég í sveitarferð með leikskóla yngri sonar míns. Það er svo sem ekki í frásögur færandi en það sem truflaði mig mikið eftir yndislega ferð í sveitina var þegar rútubílstjórinn svaraði gemsanum sínum þrátt fyrir að vera á fullu spani inn í Mosfellsbæ með fulla rútu af börnum og fullorðnum.
Maðurinn þakkaði þeim sem hringdi innilega fyrir að hringja. Þetta var greinilega kunningi eða vinur og hann var ekkert að biðja viðkomandi að hringja seinna eða neitt. Þú veist af því að hann var að keyra með FULLA RÚTU AF FÓLKI. Mér finnst þessi ákveðni rútubílstjóri hafa sýnt af sér ekki bara mikið dómgreindarleysi heldur einfaldlega mikla heimsku líka.
Mér varð hugsað til mjög eftirminnilegs þáttar Oprah Winfrey sem hún helgaði málefninu. Það sem stóð mest í mér og örugglega fleirum var margra mínútna myndskeið sem hún sýndi af brosandi andlitum. Myndum af fullt af börnum, unglingum, konum, ungum mönnum og alls konar fólki sem átti það eitt sameiginlegt að hafa látið lífið vegna þess að ökumaður bíls sem þau voru farþegar í var að tala í símann meðan hann var að keyra og það orsakaði bílslys. Dauðaslys.
Seinna í þættinum sýndi hún annað nokkura mínútna myndskeið af börnum, unglingum, konum, ungum mönnum og alls konar fólki sem átti það eitt sameiginlegt að hafa látið lífið vegna þess að ökumaður bíls sem þau voru farþegar í var að senda sms og það orsakaði bílslys. Dauðaslys.
Og hvað með allt fólkið sem situr eftir eyðilagt eftir öll þessi dauðaslys? Er í alvörunni þess virði að svara símtali akkúrat þegar það berst eða sms-i?
Ég fatta eiginlega ekki af hverju ég er ekki búin að hringja eitthvert og kvarta yfir þessu. Kannski, bara kannski, gæti það eitt bjargað mannslífi?
Hver veit?
(myndina fann ég hjá vini mínum honum Google. Þetta er ekki mynd af þeim bílstjóra sem ég er að vísa í.)

Sunday, May 20, 2012
Tuesday, May 15, 2012
Aaaarrrgghhh!!!
Kem heim og það er galopið út. Sem sagt útidyrahurðin OPIN og enginn heima.
Ummerki eftir minn 10 ára alls staðar. Ekki gengið frá eftir mat og drykk inn í eldhúsi. Sófinn í stofunni í messi og húfan hans á eldhúsborðinu.
Af hverju er ég ekki reið? Ég sem þarf að tékka fjórum sinnum inn og fjórum sinnum út hvort bévítans hurðin sé ekki örugglega læst alltaf þegar ég fer út.
Kannski er það af því að ég fór í yoga í hádeginu. En auðvitað veit ég ástæðuna. Ég er ekki reið af því að ég elska barnið.
"Kærleikur, hann umber allt. Og fellur aldrei úr gildi."
En djö.. er ég fegin að flatskjárinn og tölvan eru hérna ennþá!

Tuesday, May 8, 2012
skyr!
Fór í búðina til að kaupa skyr og endaði með því að kaupa allt annað en skyr.
Elska þegar svona gerist. Not!
Elska þegar svona gerist. Not!
Monday, May 7, 2012
gerjun
ætli maður sé að gera sér nógu mikla grein fyrir því sem er að gerast i þjóðfélaginu þegar maður er einhvern veginn gegnsósa því?
Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun treystir aðeins tíundi hver maður Alþingi, þeirri "virtu" stofnun. Álíka margir bera traust til kirkjunnar. Sú ríkisstofnun sem nýtur hve mest trausts samkvæmt könnunni er Háskóli Íslands!
Almúginn virðist vera að komast í valdastöður samanber að Jón Gnarr er enn borgarstjóri og Andrea í hagsmunasamtökum heimilina hefur boðið sig fram til forseta Alþingis og það þykir engum neitt athugavert við það. Mér finnst það frábært. Það ber vott um að allt er mögulegt og maður þarf ekki að vera með blátt blóð í æðum eða glæstan sögulegan feril að baki til að verða forseti lýðveldisins.
Alþingismenn taka sumir hverjir þátt í mótmælum. Mér finnst það æðislegt. Það gefur mér von um að ef til vill geti fólk farið að treysta stjórnmálamönnum.
Það er reyndar sorgleg staðreynd að fjögurra flokkakerfið er ennþá til og bróðir minn íhugar að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.

Sunday, May 6, 2012
Rómeó og Júlía - Vesturport style
Þegar ég sá þetta leikrit fyrir 10 árum siðan varð ég hugfangin. Þá var það sýnt á litla sviðinu í Borgarleikhúsinu og var svo ferskt og flott að mig langaði til að öskra BRAVÓ!! þegar sýningin var búin. En verandi prúða stelpan sem ég er við hliðina á föður mínum og ömmu stillti ég mig og klappaði í staðinn svo fast að mig sveið í lófana.
Auðvitað langaði mig að sjá 10 ára afmælissýninguna. Núna er hún sýnd á stóra sviðinu í sama leikhúsi og er ekkert síðri. Ég fagnaði að vild í lok sýningar.
Ef ég á að koma með smá leiklistargagnrýni þá var það tvennt sem fór vitlaust ofan í mig. Annars vegar var ég ekki sátt við að sjá börn á sýningunni. Jú, það eru loftfimleikar, já, það er maður að leika sér að eldi en eins og ég vissi var auðvitað nóg um klámkjaft og skýrskotun í alls konar kynlíf í sýningunni. Af hverju ekki að setja aldurstakmark? Hins vegar þá finnst mér að málið hefði mátt vera nútímalegra. Háfleygt tal fer í taugarnar á mér af því ég skil það ekki. Það var allavegana einhver hluti sýningarinnar sem fór fyrir ofan garð og neðan hjá mér af þvi að tungumálið var bæði of háfleygt og talað of hratt.
En þar fyrir utan: Bravó!! Það er gaman að sjá hvað leikararnir eru ennþá unglegir og hafa lítið breyst á þessum 10 árum. Æðislegt hvað þau eru ennþá fersk og lifandi og ungleg. Ansi föngulegur hópur af framúrskarandi fólki:)

Thursday, May 3, 2012
lúxusvandi
var að gera mér grein fyrir því að ég bókaði sumarbústað á sama tíma og ég ætlaði að vera dansandi á Nasa við ljúfa tóna gusgus. Ég keypti þá miða fyrir lööööngu síðan.
úps.
Auðvitað tek ég sumarbústaðaferðina fram fyrir tónleikana en samt smá fúlt af því að ég borgaði 5.800 kall fyrir miðana á gusgus. Þetta verða siðustu tónleikarnir þeirra á Nasa þar sem staðurinn er að loka...
Dáldið svekkelsi en núna get ég vonandi glatt einhverja með því að gefa þeim miðana. Ætla að tékka á mínum elskulegu bræðrum ...
:)

Wednesday, May 2, 2012
elska daginn þegar maður leggur vetrarjakkanum og fer í gallajakkann
Sá dagur var í dag.
Það er ótrúlegt hvað smá sól getur gert fyrir geðheilsuna. Elska að fylgjast með öllu lifna við eftir kaldan, dimman og langan vetur.
Af hverju er ekki bara alltaf sól?

Tuesday, May 1, 2012
um raunveruleg verðmæti
Ég var út í Bournemouth í Englandi árið 1997. Ferðin var mikil lexía fyrir mig en það verður að segjast eins og er að mér leið ekkert rosalega vel meðan ég var þarna úti. Sérstaklega ekki undir lokin.
Afi minn heitinn skrifaði mér nokkur bréf á meðan ég var í Englandi og ég skrifaði honum líka nokkur bréf. Þessi bréf sem hann skrifaði mér eru með því verðmætasta sem ég á. Mér þykir svo endalaust vænt um þau og mér þótti og þykir auðvitað ennþá svo endalaust vænt um hann afa minn.
Hann var sá eini sem kallaði mig prinsessuna sína og meinti það. Ég geymi þessi bréf í læstri skúffu sem ég var einmitt að þurrka af í dag. Ósjálfrátt fóru tárin að renna þegar ég las eitt bréfið yfir.
Það er svo satt það sem þeir sungu um kærleikann. Hann fellur aldrei úr gildi.
Mikið sem ég sakna hans afa míns núna.

Monday, April 23, 2012
um ábyrgð og ábyrgðarleysi
það virðist hafa skapast sú hefð á Íslandi að það að bera ábyrgð þýðir ekki rass í bala.
"Ég ber ábyrgð."
Og hvað svo? Skaðinn er skeður. Hver borgar brúsann?
Eða:
"Ég ber ekki ábyrgð."
Og hvað svo? Skaðinn skeður. Hver borgar brúsann?
Ég og þú min ven. Ég og þú.

að renna út
Mér fannst harðfiskurinn sem ég keypti í Krónunni í gær heldur harður undir tönn áðan. Við nánari athugun kom í ljós að hann rann út í febrúar.
Ég þoli ekki svona! Þegar vörur renna út þá renna þær út. Það er bara það einfalt.
Arg!

Thursday, March 8, 2012
smug
að vera eða vera ekki of öruggur með sig.
"Nei, takk kærlega fyrir. Ég þarf ekki að fara í fitumælingu" sagði ég hortug við samstarfsfélagana og hnyklaði vöðvana og sýndi þessu til sönnunar.
(Forsaga málsins er að svokallaður heilsudagur var í vinnunni þar sem við fengum hollan mat frá Happi og svo fræðslu og mælingu.)
Full af yfirlæti fannst mér ég ekki þurfa á þessu að halda því ég væri í massa góðu formi.
Duru duru duru du du..
Sannleikurinn kom í ljós eftir að ég lét til leiðast og stóð skó- og peysulaus á vigtinni.
Mín bara að búin að þyngjast um fullt af kílóum og ógeðslega þung á sér:/ æ, já. Allt gosið og nammið.
Shit.

Thursday, March 1, 2012
Ljótan
Í fyrradag var ég spurð hvort ég væri ólétt.
Í gær spurði Svanur mig hvort ég hefði áhuga á að fara í þáttinn hjá honum Kalla Berndsen sem snýst um makeover = þreytt og sjúskuð kona er tekin og gerð að þrususkutlu.
Eitthvað segir mér að ég ætti að fara gella mig upp aðeins!
Reyndar var fyrra kommentið, það sem var sagt við mig í fyrradag, sagt beint eftir 90 mínútna yogatíma og konan bar við súrefnisleysi og seinna kommentið held ég að hafi verið sagt í hugsanaleysi. Þátturinn var í gangi í sjónvarpinu og ég held að Svanur hafi ekki áttað sig á kaldhæðninni.
Allavegana, svona komment lætur mann aðeins fara hugsa...
Later:)

Tuesday, February 14, 2012
Það kvelur ei auga sem ei kemur í það
Þennan málshátt fékk ég í dag.
Hvað (í andsk.) þýðir þetta?
Af hverju segir fólk bara ekki það sem það meinar? Mér finnst þetta líka um flest ljóð. Stundum fara ljóð alveg í taugarnar á mér. Af hverju að fela í orðum það sem manni liggur á hjarta? Af hverju ekki bara að segja það sem maður vill segja?
Ef maður felur það sem manni liggur svona mikið á hjarta í fullt af fínum orðum þá misskilur fólk það bara!
Eins og t.d. þessi málsháttur. Er verið að tala um augnlinsur eða, eða HVAÐ?
Mig rennur í grun að hér sé ekki verið að tala um augnlinsur þar sem orðið "ei" er aftur úr fornöld en hvað merkir þetta eiginlega? Ást? Ha?
Confused.

Svana mín
Alveg elska ég þegar fólk út í bæ kallar mig Svöluna sína eða Svönuna sína.
Alveg. Elska.
Not.
Alveg. Elska.
Not.
Thursday, February 9, 2012
Mad men

Er búin að horfa á síðasta þáttinn (í bili?) af Mad men og er bara miður mín.
Ég hef ekki hugmynd um af hverju ég sakna Don Draper svona mikið. Veit ekki af hverju ég heillast af týpunni. Það er óskiljanlegt með öllu.
Af hverju laðast konur að drullusokkum?
En það er eitthvað við þáttinn og tíðarandann sem er svo heillandi. Fötin, konurnar og háttarlag þeirra. Mér finnst reyndar viðbjóðslegt hvað er reykt mikið alls staðar alltaf. Svo drekkur hann mikið og heldur fram hjá hægri og vinstri þessi Don.
Af hverju, AF HVERJU er ég þá að sakna hans?
Æ, hann á bara svo bágt eitthvað.
Friday, February 3, 2012
old men driving

Um daginn þá lagði ég bílnum á bílastæði og var eitthvað að dunda mér í kyrrstæðnum bílnum þegar gamall kall á jeppa leggur alveg við hliðina á mér (það var sko alveg fullt af öðrum bílastæðum) og þegar hann opnar hurðina þá skellir hann henni frekjulega (að mér fannst) beint í hliðina á mínum bíl.
Hann hefur líklegast ekki séð neitt eða heyrt neitt eða neitt hann var svo gamall. Svo labbaði hann ellilega inn á tannlæknastofu þar sem mót fyrir góma eru tekin.
Svo þoli ég ekki þegar gamalt fólk er svo "út á þekju" að það ýtir helvítis bónuskörfunni á mann í biðröðinni við kassann á Bónus. Ég set út á þekju í gæsalappir því ég veit ekki hvort þetta fólk sé að gera þetta viljandi (out of spite) eða óviljandi (sem ég efa.)
Friday, January 20, 2012
að panta pizzu
Ætla svoleiðis aldrei að leggja þennan skít vafinn í hveitilím aftur inn fyrir mínar varir.
Ætla heldur ekki að nefna nafnið á pizzastaðnum - because I believe in karma.
Bara never again. Þegar fólkið mitt ætlar að fara panta pizzu frá þessum stað þá bara bruna ég með det samme í Grænan kost að fá mér hollustu í líkamann. Takk og bless.
Tuesday, January 17, 2012
Hallæri
Þegar ég var á gelgjunni sem var nú alveg nógu andskotans lengi fannst mér margt hallærislegt. Þar á meðal foreldrar mínir.
Núna þjáist ég reglulega af samviskubiti vegna eigin hallæris. Hvernig gat ég verið svo hallærisleg að finnast alveg glatað að minn eigin elskulegi faðir sem ég virði og dái kommentaði á bloggið mitt?
Kaldhæðnin er að sjálfsögðu sú að enginn annar kommentar nema Tinna mín.
Hér er kaldhæðni, um hallæri, frá hallæri til kaldhæðni.

Loksins aftur bók sem ég elska að lesa

Núna er ég komin með bók sem ég get varla lagt frá mér og les á hverjum degi. Leist nú fyrst ekkert á þessa bók þegar ég fékk hana í jólagjöf og fannst að þarna væri komin enn ein vælubókin en...
The Help eða Hjálpin er virkilega góð bók og alveg eins og stendur á kápunni þá heldur hún manni heljargreipum og lesandinn er fastur í snörunni.
Love it:)
Tuesday, January 10, 2012
Vanity
Yes, I'm vain. So vain.
Sit nú heima í veikindaleyfi eftir fyrstu fegrunaraðgerðina. Þetta var nú líklegast líka sú síðasta en allavegana:
Nú er ég búin að fá ýmis komment um útganginn á mér. Vinur sonar míns (9 ára) sagði: "Hvað gerðist?" Ég útskýrði fyrir honum að ég hefði farið í aðgerð á þessu svæði til að laga aðeins og hann spurði aftur: "Já, en hvað gerðist?" Svo var ég að tala við tengdamömmu í gærkvöldi og hún spurði eins og von er: "Var þér illt?"
Þetta var nú kannski ekki nauðsynleg aðgerð af því mér var illt eða af því eitthvað gerðist svakalega mikið og það er ekki laust við að maður skammist sín smá fyrir eigin hégómagirnd en mér var samt smá illt á sálinni út af þessu af því stundum sá ég ekkert annað í speglinum en þessa fjölmarga hvítu fituhnúða undir augunum. Mér fannst þetta rosalega áberandi þó sumir vita ekkert hvað ég er tala um og sáu ekkert að.
Allavegana, þetta blessaða ástand sem ég fékk heitir Xanthelasma og núna get ég kysst það bless:)

Wednesday, January 4, 2012
Time to say goodbuy to Bogahlíð 26
Árið 2012 verður ár flutninga hjá minni.
Inn í þessa 81 fermetra íbúð kom ég fyrir 10 árum síðan með ungabarn og út héðan fer ég með þrjú börn og einn mann.
Hvað svo verður veit nú enginn en ég er með háleitar áætlanir um að flytja inn í íbúð þar sem það er númer eitt; enginn fyrir ofan mig, númer tvö; geymsla og númer þrjú; allavegana tvö ef ekki þrjú barnaherbergi.
Ji, tilhlökkun og gleði í hjarta:)

Subscribe to:
Posts (Atom)