Sunday, May 6, 2012

Rómeó og Júlía - Vesturport style

Þegar ég sá þetta leikrit fyrir 10 árum siðan varð ég hugfangin. Þá var það sýnt á litla sviðinu í Borgarleikhúsinu og var svo ferskt og flott að mig langaði til að öskra BRAVÓ!! þegar sýningin var búin. En verandi prúða stelpan sem ég er við hliðina á föður mínum og ömmu stillti ég mig og klappaði í staðinn svo fast að mig sveið í lófana.

Auðvitað langaði mig að sjá 10 ára afmælissýninguna. Núna er hún sýnd á stóra sviðinu í sama leikhúsi og er ekkert síðri. Ég fagnaði að vild í lok sýningar.

Ef ég á að koma með smá leiklistargagnrýni þá var það tvennt sem fór vitlaust ofan í mig. Annars vegar var ég ekki sátt við að sjá börn á sýningunni. Jú, það eru loftfimleikar, já, það er maður að leika sér að eldi en eins og ég vissi var auðvitað nóg um klámkjaft og skýrskotun í alls konar kynlíf í sýningunni. Af hverju ekki að setja aldurstakmark? Hins vegar þá finnst mér að málið hefði mátt vera nútímalegra. Háfleygt tal fer í taugarnar á mér af því ég skil það ekki. Það var allavegana einhver hluti sýningarinnar sem fór fyrir ofan garð og neðan hjá mér af þvi að tungumálið var bæði of háfleygt og talað of hratt.

En þar fyrir utan: Bravó!! Það er gaman að sjá hvað leikararnir eru ennþá unglegir og hafa lítið breyst á þessum 10 árum. Æðislegt hvað þau eru ennþá fersk og lifandi og ungleg. Ansi föngulegur hópur af framúrskarandi fólki:)


No comments: