Tuesday, August 28, 2012

underwear, dirty

ég var búin að liggja í slökun fyrir yogatímann örugglega í svona 10 mínútur. Svo hefst tíminn og við eigum að setjast. Mér til hryllings uppgötva ég að það gægjist eitthvað neðan úr joggingbuxunum mínum sem eru gráar, stuttar og svona aðþrengdar að neðan.

Það tekur mig u.þ.b. 2 sekúndur að átta mig á því að á einhvern fáránlegan máta hafa notaðar nærbuxur, já mínar, verið ennþá í íþróttatöskunni og falið sig innan í joggingbuxunum. Omg.

Þar sem ég er aftast af því að ég er ólétt er fyrsta hugmyndin mín að læða þeim á bakvið styrktarsúlu sem er við hliðina á mér. Svo leið mér ekki nógu vel með það svo ég læði þeim (þegar yndislegi yogakennarinn) er ekki að horfa undir yogamottuna. En þá kemur bunga á hana.

Glatað! Hef eiginlega ekki lent í öðru eins í seinni tíð.

Það fór svo að ég náði að slétta aðeins úr bungunni en ji minn eini, what are the odds? Smyglaði nærbuxunum svo eftir tímann í vasann á joggingbuxunum en ég kem til með að athuga vel að þetta gerist ekki aftur!

Voða svona 13 ára dæmi en ekki 33 ára, ha?

No comments: