Friday, November 9, 2012

anal

nei, mamma og pabbi. Ég ætla ekki að fara skrifa um endaþarmsmök..!

Veit ekki af hverju ég er ein af þessu fólki sem gerir alltaf það sama. Þegar ég skokkaði þá fór ég t.d. alltaf sama hringinn við sömu tónlistina sem var búin að vera í ipodinum í mörg ár. Mér datt ekki einu sinni í hug að fara öfugan hring..

Enda oftar en ekki á sama veitingastaðnum ef ég fer út að borða. Fer á sömu staðina og geri basically það sama dag eftir dag eftir, alveg í miðjunni á þægindahringnum.

Núna þegar ég er ófrísk, geng ég sama hringinn svona næstum því á hverju kvöldi áður en ég fer að sofa. Og auðvitað er ég bara að flytja aðeins neðar í götuna! Ég meira að segja sé íbúðina héðan. En ekki hvað?

Mikið væri nú gaman að brjótast aðeins út úr hringnum...!

Er það ekki kallað að vera "anal" á ensku þegar maður er svona ansi einstrengingslegur og hversdagslegur?

2 comments:

Tinnsi said...

Þetta orð er eiginlega frátekið fyrir fólk sem er óþolandi jafnframt því að vera vanafast. Ef maður er indæll en vanafastur, þá kannski bara OC. Ætli það sé ekki betri lýsing á þér Svava mín. Pínu OC. (Relating to or characterized by a tendency to dwell on unwanted thoughts or ideas or perform certain repetitious rituals, especially as a defense against anxiety from unconscious conflicts).

Svava said...

vá, ég er pottþétt OC!
Sakna þín Tinna:*