Um hnökrun og annan horbjóð:
Mikið ofboðslega verð ég alltaf svekkt þegar fín (og dýr) flík kemur sködduð út úr fyrsta þvotti í þvottavélinni þrátt fyrir að þvegið hafi verið samkvæmt þvottaleiðbeiningunum á flíkinni.
Mér finnst ég hreinlega vera svikin þegar flík sem er flott og fín og þar sem þvottaleiðbeiningarnar kveða á um að megi þvo á 40 gráðu hita kemur hnökruð í drasl úr þvottavélinni. Þetta er að gerast ítrekað hjá mér núna.
Þarf ég í alvöru að fara handþvo allar flíkur sem mér þykir vænt um? Mér sýnist það.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Þetta er að gerast ítrekað hjá mér núna.
Kannski væri betra að segja: Þetta hefur gerst ítrekað hjá mér núna. ?
Jú, ábyggilega:)
Post a Comment