Saturday, May 30, 2015

30/5 2015

Allt er gott sem endar vel.

Afmælisveislan hjá Stefáni Mána í Smáratívolíi gekk svona líka glimrandi vel. Allir hamingjusamir.

Ætla að leggja mig núna.

Bæ.

Friday, May 29, 2015

29/5 2015

Og sagan heldur áfram.

7 ára strákurinn var í miklu uppnámi hérna heima í morgun. Vildi ennþá alls, alls ekki fá stelpurnar í bekknum í afmælið sitt:/

Pabbi hans talaði við kennarann og annar kennari talaði víst við bekkinn um þetta og börnin voru sammála um að þeim langaði til að vera saman í svona afmælum. Phew:)

Hann hefur ekkert talað um þetta eftir að hann kom heim sem er auðvitað æði.

Bið svo fyrir sjálfri mér að þurfa að vera í rúmlega tvo klukkutíma í Smáratívolí á morgun með einhverjum urmul af börnum. Smáralind er bara ekki minn staður, eða Kringlan.

Thursday, May 28, 2015

28/5 2015

Ég á ekki til aukatekið orð.

Var að gera og græja afmælið hans Stefáns Mána í dag sem átti fyrst að vera bara fyrir strákana í bekknum og verður núna á laugardaginn í Smáratívolí. Það eru bara svo fáir strákar í bekknum hans að við sjáum að kannski í mesta lagi 5 þeirra mæti og það er 11 barna lágmark.

Svanur stakk upp á að bjóða stelpunum líka svo ég gerði það í dag. Í gær sendi ég foreldrum strákana tölvupóst í gegnum Mentor; boð í afmælið og svo í dag valdi ég foreldra stelpnanna og sendi þeim.

Svo fór ég að ná í Stefán í skólann og segi honum frá þessu.

Nei, nei. Barnið tekur trylling. Fer úr úlpunni og flengir henni í jörðina, öskrar og slær mig. Brjálaður.

Hann vill ekki fá stelpurnar.

#omgomgomg 

27/5 2015

Þetta er afmælisdagurinn hans Stefán Mána.

Drengurinn orðinn 7 ára! Núna er hann búinn að missa báðar framtennurnar:)

Þetta er mynd sem var tekin í afmælinu hans fyrir sléttu ári síðan. Þarna er hann voða glaður í Ævintýralandinu (eða hvað það nú heitir) í Kringlunni.

Núna hótar hann að mæta ekki í sitt eigið afmæli ef að stelpurnar koma.

Hvað á ég að gera? Afbjóða þeim? Really?

26/5 2015

Elska, elska, ELSKA að sumarið sé að koma:)

Wednesday, May 27, 2015

25/5 2015

Oh hvað það er mikil stemmning að fara út í ekki neinum sokkum.

Elska þennan tíma þegar maður er í sumarskóm, ekki í neinum sokkum, sumarfötum og gallajakka. Helst með sólgleraugu. Þá er stuð:)

Í dag fór ég með góðan blur disk út í bíl. Það er stemmari í þessum;


Er komin í dagarugl aftur. Mánudagurinn 25/5 var annar í hvítasunnu og rauður frídagur. Var bara aðallega heima að chilla þennan dag, fór í sund. Var að glíma við massa fyrirtíðaspennu. Úff.

Sunday, May 24, 2015

24/5 2015

Fyrirtíðaspenna cha cha cha.

23/5 2015

Þessi dagur var góður dagur.

Í fyrsta skiptið í lengri tíma gisti Guðrún Halla hjá mömmu og pabba og ég var frjáls eins og vindurinn. Svanur fór norður með Stefán Mána og Óli var líka hjá mömmu.

Húsmóðirin var þreytt, hafði sofið illa en eftir að hafa innbyrgt smá appelsín seinnipartinn hresstist ég öll við. Tók geggjara heima loksins þegar íbúðin var tóm.

Fór í Krónuna eftir að hafa losnað við börnin. Þetta var nýja Krónubúðin í Hamraborg sem ég elska og ákvað ég því miður að fara akkúrat þennan dag þangað. Það var fullt út úr dyrum og löng biðröð á kassann.

Allavegana, þegar ég loksins kom heim tók ég sem sagt geggjara sem fólst í því að gera heimilisstörfin á mettíma án þess að stoppa. Ryksugaði, skúraði (illa reyndar) og tók til og gekk frá þvottinum. Fór svo í bíó með elsku Ásdísi á Pitch Perfect 2.

Við Ásdís náum vel saman og hlógum eins og vitleysingar á myndinni. Vorum nánast einar í salnum vegna þess að Eurovision var þetta kvöld. Töluðum svo meira saman eftir myndina og hlógum meira.

Hlátur er stundum besta meðalið. Þarf að hitta Ásdísi oftar.

22/5 2015

Úff.

Dagur fyrirtíðaspennu. Hormónar flæðandi út um allt. Verkir. Meiri fyrirtíðaspenna.

Leigði mér Bridget Jones mynd á "vodinu." Seinni myndina. Grét út mér augun af því að hún var svo rómantísk. Get bara ekki horft á rómantískar myndir nú til dags án þess að vola. Veit ekki hvað er að mér. Þarfnast líklegast kærleiks.

21/5 2015

Elsku blogg.

Ég hef vanrækt þig. Fyrirgefðu.

Ætli maður sé ekki bara dáldið upptekinn og annars hugar...

Það er alveg nóg að gera og að gerast í vinnunni sem er auðvitað bara frábært. Alltaf betra að hafa nóg að gera en of lítið að gera. Þá leiðist manni bara eða allavegana mér. En núna er ég komin alveg fullt á eftir í daglega blogginu mínu og ætla að bæta fyrir það núna. Er að skrifa fimmtudaginn 21/5 núna á hvítasunnudeginum 24/5 sem náttúrulega bara gengur ekki.

Þennan dag komst Ísland ekki áfram í Eurovision undanriðlinum og ég fór á bömmer ásamt hálfri þjóðinni og aumingja söngkonunni. Stefán Máni (6 ára) sagði að þetta væri út af því að lagið væri "ömurlegt." Nýja uppáhalds orðið hans. Núna er allt "ömurlegt" ef það er ekki frábært.

Þessi blessuðu, blessuðu börn.

Thursday, May 21, 2015

20/5 2015

Núna er ég fastagestur í sundlaugunum.

Bara elska að fara í pottinn og synda smá.

Æði.

19/5 2015

ok, bara gleymið öllu sem ég sagði um svarta diskinn með Metallica.

Er að hlusta á hann aftur í bílnum og er bara að fíla hann í ræmur núna. Þurfti bara að hækka aðeins, það munaði öllu:)

Wednesday, May 20, 2015

18/5 2015

Jæja,

núna er ég komin dáldið eftir á og er að skrifa mánudaginn 18/5 þann 20/5. Það er bara alveg nóg að gera.

Í dag (miðvikudaginn 20/5) á ég voða bágt. Ég var einmitt að hugsa hvað ég væri ánægð með kírópraktorinn og hvað ég væri orðin miklu betri þegar ég fór í gær og fattaði af hverju ég er alltaf á hausnum núna. Tíminn þarna kostar 4.300 kr og ég er búin að vera fara 3x í viku og 2x í viku... Svo í þokkabót er ég að drepast í bakinu eftir tímann hjá honum í gær. Annað hvort gerði hann eitthvað rétt og ég á að vera sálast eða þá að hann gerði bara eitthvað rangt. Æ, úff...

Er búin að taka nokkrar verkjatöflur og treo en leið fyrst aðeins betur eftir ég setti "tiger balm" á særða svæðið á elsku bakinu mínu. Ég bara vona að ég verði betri á morgun, úff:/

Sunday, May 17, 2015

17/5 2015

Milestone.

Núna verð ég aldrei aftur með barn sem notar smekk. Það er áfangi. GH rífur hvort sem er þessa smekki alltaf af sér...


16/5 2015

Ég get svoleiðis svarið það að þvottavélin okkar er með persónuleika.

Mér finnst hún alltaf svo æst eitthvað. Maður kveikir á henni og velur prógram og svo byrjar hún að æpa á mann "load laundry." Ok, að sjálfsögðu æpir hún ekki en hún svona blikkar þessu og mér finnst þetta vera í hástöfum: "LOAD LAUNDRY." "LOAD LAUNDRY." "LOAD LAUNDRY."

Þannig að ég fer alltaf að drífa mig til að þóknast henni. Svo þegar hún er búin þá pípar hún mjög hátt og segir "remove laundry." REMOVE LAUNDRY." REMOVE LAUNDRY." Og pípar og pípar.

Kannski eru hún ekkert svona bráluð heldur hefur bara hag okkar fyrir brjósti og vill bara skila af sér góðu verki. Sem hún gerir.

Æ, þetta eru bara svona fyrstu dagarnir þegar maður er að kynnast einhverjum nýjum. Báðir aðilar eru stundum svona hálf skrýtnir og vilja bara gera allt til að hinum aðilanum líki við þá. Hún er örugglega bara stressuð. Eins og ég.

Jæja, Svava. Þú ættir kannski að fara meira út af heimilinu;)

15/5 2015

Þessi dagur var asnalegur. Frí á fimmtudegi, svo vinna á föstudegi og svo helgi. Auðvitað er starfsfólkið okkar veikt eða í fríi og við náum varla að manna þetta með afleysingunum okkar. Allt á hlið en reddaðist þó eins og alltaf:) Enda erum við frábær.

Saturday, May 16, 2015

14/5 2015

Þessi dagur var uppstigningardagur sem var rauður dagur.

Afar kærkomið að hvíla sig bara heima og skipuleggja sig aðeins. Um kvöldið fór ég út að borða með Önnu Láru vinkonu sem var í stuttu stoppi í borg óttans en hún á heima á Akureyri núna.

Rosa gott að chilla bara aðeins með Önnu. Gott líka að fara aðeins út að borða, maður gerir það svo sjaldan..

Thursday, May 14, 2015

13/5 2015

Þennan dag var það Metallica.

Ég var dáldið spennt og sá fyrir mér góðan dag í bílnum. En svo varð ég eiginlega fyrir vonbrigðum. Þetta var ekki eins mikið dúndur og mig minnti og ég slammaði ekki einu sinni eða gerði rokkmerkið eða neitt.

Þetta var svarti diskurinn:

Æ, bara bla. Ekkert svo góður diskur.

12/5 2015

Jæja, þá heldur tónlistarleikurinn áfram.

Núna er ég komin í lítinn kassa sem ég fann upp í skáp sem ég geymi í alveg fullt af geisladiskum. Ég hef gaman af þessu, þarna eru geisladiskar sem vinir mínir hafa "skrifað" og gefið mér. Var til dæmis að finna einn sem Begga vinkona gaf mér einhvern tímann á háskólaárunum...:)

Allavegana, þennan dag var það Rage against the machine. Það er dáldið fyndið af því að mig langaði ekkert svo mikið að fara með þennan disk út í bíl. Veit að þetta eru mikil læti. Blendnar tilfinningar. Er svo ekki að tengja við alla þessa reiði núna sem er auðvitað frábært. Aftur á móti er alveg fílingur í þessari tónlist og það eru alveg kaflar sem þurfa að spilast hátt. Var því í algerum fíling þegar ég var að keyra fyrirtækisbílinn þennan daginn þó að ég hafi lækkað umtalsvert þegar ég kom að ljósum. Bara svona til að virðast ekki vera að klikkast inn í fyrirtækisbíl.

Sem sagt, jú sannarlega fílingur í þessari tónlíst. Suma kafla er mjög gott að spila hátt en er alls ekki að tengja við alla þessa reiði og rebelisma núna.


Monday, May 11, 2015

11/5 2015

DING DONG!!

Hvað er meira pirrandi en þetta hljóð þegar maður er alveg í sóninu, búin að koma sér vel fyrir upp í sófa, takandi vinnusímtal og er bara að reyna að vinna heima hjá sér í Guðs friði? Ég bara spyr?!

Það er alltaf sami strákurinn sem kemur akkúrat á þessu mómenti og DING DONG!! spyr eftir Óla. Djöfull er ég pirruð á honum. Ef ég er að sinna mínum málum í miðjum klíðum inn á klósetti þá.. DING DONG!! þessi strákur. Alltaf þessi strákur. Hann á heima á næstu hæð fyrir neðan og er vinur hans Óla. Sumt fólk er bara svona. Fer bara alveg í taugarnar á manni.

Það er nú sem betur fer ekki mikið um það en þessi strákur fer alveg með mig. Ég er í miðri hugleiðslu með hitapoka upp í rúmi og... DING DONG!!! Alltaf ÞESSI strákur.

Arg. Svo er ég að sjálfsögðu pirruð út í sjálfa mig fyrir að láta barn fara svona í taugarnar á mér.

Reyndar er með því fyndnara sem ég hef séð það sem ég sá í einu Youtube tónlistarmyndbandi þegar konan sendir pirrandi barni puttann. Pha!

En sum börn eru einfaldlega óþolandi. Það er bara þannig.

Urg.

Sunday, May 10, 2015

10/5 2015

Hann Svanur minn er nú alveg ágætur.

Þvottavélin bilaði og hann fór og keypti nýja. 10 kg vél með innbyggðri vigt sem segir hvað mörg kíló má fara inn í það prógramm sem maður er búinn að velja og svo hvað maður er búinn að setja mikið inn. Alger snilld.

Við erum svo lukkuleg með þessa blessuðu nýju þvottavél að óhreini þvotturinn er næstum því búinn:)

Er ekki lífið dásamlegt?

Saturday, May 9, 2015

9/5 2015

Tvennt.

Ég lærði þá mikilvægu lexíu í dag að það er ekki svo góð hugmynd að maka á sig kaldpressaðri kókosolíu, sko í andlitið, og setja svo á sig maskara og fara svo í yoga. Maskarinn fer bara út um allt og þú lítur út eins og fífl án þess að vita það!

Jæja, ég vona að ég muni eftir þessu í framtíðinni. Finnst svo gott um helgar og á kvöldin að setja kókosolíu á smettið, það fer svo vel með húðina. Já, eða aloe vera gel. Mmmmm...

Eitt fer í taugarnar á mér í dag og það er samviskubitspúkinn. Það er fjölskyldudagur í fyrirtækinu sem ég vinn hjá í dag. Ég var búin að ákveða að fara ekki af því að ég bara verð að sinna heimilinu í dag. Við vorum að fá nýja þvottavél sem þarf að græja, þvotturinn er út um allt og heimilið á hvolfi eða svona næstum því og mig langar til að þrífa inn á baði og taka til í dag. Bara af fullri einlægni þá er það það sem ég vil gera í dag. Auk þess eru mörg mál sem ég þarf að gera hérna heima og átta mig á í ró og næði sem ég hef ekki náð að sinna í lengri tíma núna. Ég er að fara vinna í fyrramálið (já, á sunnudegi!) og svo er fjölskylduboð og þá er helgin búin og önnur vinnuvika byrjuð. Allavegana, ég er samt með samviskubit yfir að fara ekki á fjölskyldudaginn og er búin að þylja upp hinar ýmsu afsakanir í hausnum á mér fram og tilbaka, ef einhver skyldi nú hringja, af hverju ég er ekki þarna. Mér er illt í bakinu og hef engan áhuga á að brussast með börnin lengst í burtu á skauta. Stefán Máni er svo erfiður að hann þarf allavegana tvo fullorðna á sér, sko tvo með góð bök. Mér sýnist að ég myndi vera ein með börnin, sko líka með litlu og það dæmi bara gengur ekki upp.

Af hverju er ég með samviskubit. Það er óþolandi! Karlmaður myndi einfaldlega segja: "Ég kemst ekki" og svo myndi hann ekki eyða annari hugsun í málið. Ég er meira að segja að vinna með einum sem er nákvæmlega svona. Þetta fer í pirrurnar á mér.

8/5 2015

þetta var góður dagur.

Ákvað að sleppa kaffinu þennan dag og fann að ég var öll mýkri og afslappaðri. Ætla að fara stunda þetta. Finn að það skilar betri útgáfu af mér.

7/5 2015

Vinni vinni vinni vinn.

Þennan dag er ég í mega stuði, keyrandi með vörur í fyrirtæki með góðan aðkeyptan kaffibolla í bílnum og Underworld á fullu blasti.

Lífið leikur við mig.

6/5 2015


Það var nú reyndar ekki þennan dag sem Emilía fór. Hún fór á fimmtudeginum. (Er að skrifa þetta aftur á bak núna.) En ég fann að ég saknaði skottunnar. Við erum vinkonur núna og hún er í rauninni eina af börnunum sem hjálpar mér eitthvað af ráði með öll hin börnin og hlýðir mér. 


Wednesday, May 6, 2015

5/5 2015

Jæja,

núna var groovað í bílnum. Mikil stemmning, mikið gaman. Sól úti og skvísan í gallajakkanum (ekki einum fata.)

Næsti diskur í röðinni var nefnilega þessi:

Virkilega góður diskur. Man samt ekki eftir því að hafa verið mikill aðdáandi en einhvern veginn hefur þessi diskur ratað í mínar fórir. Ha, fórir?

4/5 2015

Jæja,

næsti diskur í röðinni var Red Snapper og hlustaði ég á hann í gær. Ég var dáldið spennt og bjóst við miklu groovi því í minningunni er þessi diskur mjög groovaður og mikil stemmning í að hlusta á hann. Ég bjóst þess vegna við góðri bílferð í vinnunni en .... þvílík vonbrigði.

Bara rólegur ambiant diskur. Ekkert groove. Engin fílingur. Svo var ég sjálf drulluþreytt og ómöguleg af því að ég er með blöðrubólgu. Aumingja ég.


Monday, May 4, 2015

3/5 2015

Omg.

Næsti diskur í röðinni var Mínus diskur. Guð minn góður, þvílík læti. Gat náttúrulega ekki byrjað að hlusta fyrr en eftir hádegi vegna þess að þetta eru bara læti. Þurfti að taka margar pásur með því að skipta yfir á eitthvað happy í útvarpinu. Það er samt eitt gott lag sem ég fíla og það er auðvitað lag númer 7 á þessum disk og heitir Long face. Það er geggjað lag.

Hendi sko ekki þessum disk því hann minnir mig á að einu sinni var ég rokkari og fór á tónleika með þessum köppum.

Það var samt virkilega erfitt að hlusta á öll lögin á þessum disk fyrir utan númer 7. Úff, hvað ég er orðin mega gömul.

2/5 2015

Það er svo skrýtið (já eða ekki) hvað maður breytist mikið.

Ég er að fara í gegnum alla gömlu geisladiskana mína með því að fara með hvern og einn út í bíl og hlusta á þá. Núna síðast var diskurinn blur: The great escape næstur í röðinni.

Eins mikið og ég fílaði blur fyrir hva.. sirka 15-20 árum síðan þá er ég ekki alveg að fíla þá núna. Kannski einstaka lag sem er gaman að syngja með en annars bara bla...

Henti meira að segja einum blur disk um daginn eftir að hafa farið með hann í bílinn. Það var "13" diskurinn. Hann er voða dimmur og leiðinlegur. Henti honum hreinlega í ruslið. By the way þá langaði mig að gera það við Lay Low diskinn sem var á undan The great escape disknum í röðinni en fékk það hreinlega ekki af mér af því að Tryggvi bróðir gaf mér þennan Lay low disk í jólagjöf minnir mig. Við þekkjumst greinilega ekki nógu vel nú til dags ég og brósi því í stað þess að henda Lay low diskinum þá setti ég hann með í pokann með notuðu fötunum sem fer í Rauða krossinn. Þið vitið, af því að maður hendir ekki gjöf frá bróður manns. Úff..

Allavegana, þessi diskur

er bara bla. Ætla samt ekki að henda honum. Þetta er voða væl stundum söngurinn hjá Damon Albarn en eitthvað var ég rosalega mikið að tengja við það á mínum yngri árum. Er greinilega hamingjusamari núna því ég nenni ekki að hlusta á þetta væl lengur.

Æ, hvað að er gott og gaman að þroskast.

Sunday, May 3, 2015

1/5 2015

Yndislegir þessir dagar þegar maður uppgötvar og trúir því að veturinn er búinn og sumarið er að koma. Það er svo mikil stemmning.

Hvað í ósköpunum við eigum að gera við þessi börn í sumar er svo annað mál. Stefán Máni er mesta vandamálið ef svo má að orði komast. Hann er á svo erfiðum aldri eitthvað og er eitthvað svo erfiður þessa dagana. Maður getur einhvern veginn ekki bara hent honum á eitthvað námskeið. Honum á kannski eftir að finnast það "ömurlegt" en það er nýja uppáhalds orðið hans...

Oh dear.

Friday, May 1, 2015

30/4 2015

Ég held að ég sé ástfangin.

Stjórnunaráráttan innra með mér er í alsælu. Ég er búin að finna skipulagsforrit. Það er á internetinu og heitir Trello.

Á hverjum degi mæti ég vinnuna með svona lítið memo blað með verkefnum dagsins. Ég ætla að prufa að skipta því út fyrir þetta Trello dæmi. Bara prufa en ég sé samt fyrir mér að degi minnisblaðsins sé ef til vill lokið.

Change is good. Be the change.

Bjarga kannski einu tréi með þessu framtaki internetsins.