Monday, May 11, 2015

11/5 2015

DING DONG!!

Hvað er meira pirrandi en þetta hljóð þegar maður er alveg í sóninu, búin að koma sér vel fyrir upp í sófa, takandi vinnusímtal og er bara að reyna að vinna heima hjá sér í Guðs friði? Ég bara spyr?!

Það er alltaf sami strákurinn sem kemur akkúrat á þessu mómenti og DING DONG!! spyr eftir Óla. Djöfull er ég pirruð á honum. Ef ég er að sinna mínum málum í miðjum klíðum inn á klósetti þá.. DING DONG!! þessi strákur. Alltaf þessi strákur. Hann á heima á næstu hæð fyrir neðan og er vinur hans Óla. Sumt fólk er bara svona. Fer bara alveg í taugarnar á manni.

Það er nú sem betur fer ekki mikið um það en þessi strákur fer alveg með mig. Ég er í miðri hugleiðslu með hitapoka upp í rúmi og... DING DONG!!! Alltaf ÞESSI strákur.

Arg. Svo er ég að sjálfsögðu pirruð út í sjálfa mig fyrir að láta barn fara svona í taugarnar á mér.

Reyndar er með því fyndnara sem ég hef séð það sem ég sá í einu Youtube tónlistarmyndbandi þegar konan sendir pirrandi barni puttann. Pha!

En sum börn eru einfaldlega óþolandi. Það er bara þannig.

Urg.

No comments: