Sunday, May 17, 2015

16/5 2015

Ég get svoleiðis svarið það að þvottavélin okkar er með persónuleika.

Mér finnst hún alltaf svo æst eitthvað. Maður kveikir á henni og velur prógram og svo byrjar hún að æpa á mann "load laundry." Ok, að sjálfsögðu æpir hún ekki en hún svona blikkar þessu og mér finnst þetta vera í hástöfum: "LOAD LAUNDRY." "LOAD LAUNDRY." "LOAD LAUNDRY."

Þannig að ég fer alltaf að drífa mig til að þóknast henni. Svo þegar hún er búin þá pípar hún mjög hátt og segir "remove laundry." REMOVE LAUNDRY." REMOVE LAUNDRY." Og pípar og pípar.

Kannski eru hún ekkert svona bráluð heldur hefur bara hag okkar fyrir brjósti og vill bara skila af sér góðu verki. Sem hún gerir.

Æ, þetta eru bara svona fyrstu dagarnir þegar maður er að kynnast einhverjum nýjum. Báðir aðilar eru stundum svona hálf skrýtnir og vilja bara gera allt til að hinum aðilanum líki við þá. Hún er örugglega bara stressuð. Eins og ég.

Jæja, Svava. Þú ættir kannski að fara meira út af heimilinu;)

No comments: