Saturday, May 9, 2015

9/5 2015

Tvennt.

Ég lærði þá mikilvægu lexíu í dag að það er ekki svo góð hugmynd að maka á sig kaldpressaðri kókosolíu, sko í andlitið, og setja svo á sig maskara og fara svo í yoga. Maskarinn fer bara út um allt og þú lítur út eins og fífl án þess að vita það!

Jæja, ég vona að ég muni eftir þessu í framtíðinni. Finnst svo gott um helgar og á kvöldin að setja kókosolíu á smettið, það fer svo vel með húðina. Já, eða aloe vera gel. Mmmmm...

Eitt fer í taugarnar á mér í dag og það er samviskubitspúkinn. Það er fjölskyldudagur í fyrirtækinu sem ég vinn hjá í dag. Ég var búin að ákveða að fara ekki af því að ég bara verð að sinna heimilinu í dag. Við vorum að fá nýja þvottavél sem þarf að græja, þvotturinn er út um allt og heimilið á hvolfi eða svona næstum því og mig langar til að þrífa inn á baði og taka til í dag. Bara af fullri einlægni þá er það það sem ég vil gera í dag. Auk þess eru mörg mál sem ég þarf að gera hérna heima og átta mig á í ró og næði sem ég hef ekki náð að sinna í lengri tíma núna. Ég er að fara vinna í fyrramálið (já, á sunnudegi!) og svo er fjölskylduboð og þá er helgin búin og önnur vinnuvika byrjuð. Allavegana, ég er samt með samviskubit yfir að fara ekki á fjölskyldudaginn og er búin að þylja upp hinar ýmsu afsakanir í hausnum á mér fram og tilbaka, ef einhver skyldi nú hringja, af hverju ég er ekki þarna. Mér er illt í bakinu og hef engan áhuga á að brussast með börnin lengst í burtu á skauta. Stefán Máni er svo erfiður að hann þarf allavegana tvo fullorðna á sér, sko tvo með góð bök. Mér sýnist að ég myndi vera ein með börnin, sko líka með litlu og það dæmi bara gengur ekki upp.

Af hverju er ég með samviskubit. Það er óþolandi! Karlmaður myndi einfaldlega segja: "Ég kemst ekki" og svo myndi hann ekki eyða annari hugsun í málið. Ég er meira að segja að vinna með einum sem er nákvæmlega svona. Þetta fer í pirrurnar á mér.

3 comments:

Tinnsi said...

Ég las fyrst: það er ekki gott að maka sig á kaldpressaðri... Og þá var þessi saga svaka spennandi. En skil hvað þú meinar með samviskubitspúkann - hann er alveg óþolandi. Ein vinkona mín segir stundum: ég skal hafa áhyggjur fyrir þig eða samviskubit fyrir þig og þú getur einbeitt þér af því sem þú þarft að gera. Það virkaði ótrúlega vel. Kannski er Svanur til í að vera með samviskubit fyrir þig, þar sem það virðist vera lítið mál fyrir karlmenn.

Tinnsi said...

En þessi húðvandamál hljóma eins og þú sért með ofnæmi fyrir einhverju. Hljóma eins og einkenni hjá frænku minni og hún lagast einmitt svo af kókos og aloe en síðan kom í ljós að hún er með tiltölulega vægt hnetuofnæmi en öll önnur eftir að hún hætti að borða hnetur og brauð sem eru bökuð þar sem hnetur eru líka etc.

Svava said...

Já, hann er ekki skemmtilegur þessi samviskubitspúki. Eyddi alveg morgninum í að þylja upp afsakanir í hausnum... Svo náttúrulega mætir maður í vinnuna og allir eru bara: "oh, það var svo gaman á skautum og bla, bla, bla..." Æ, whatever. Im over it.