Elsku blogg.
Ég hef vanrækt þig. Fyrirgefðu.
Ætli maður sé ekki bara dáldið upptekinn og annars hugar...
Það er alveg nóg að gera og að gerast í vinnunni sem er auðvitað bara frábært. Alltaf betra að hafa nóg að gera en of lítið að gera. Þá leiðist manni bara eða allavegana mér. En núna er ég komin alveg fullt á eftir í daglega blogginu mínu og ætla að bæta fyrir það núna. Er að skrifa fimmtudaginn 21/5 núna á hvítasunnudeginum 24/5 sem náttúrulega bara gengur ekki.
Þennan dag komst Ísland ekki áfram í Eurovision undanriðlinum og ég fór á bömmer ásamt hálfri þjóðinni og aumingja söngkonunni. Stefán Máni (6 ára) sagði að þetta væri út af því að lagið væri "ömurlegt." Nýja uppáhalds orðið hans. Núna er allt "ömurlegt" ef það er ekki frábært.
Þessi blessuðu, blessuðu börn.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment