Saturday, October 31, 2015
30/10 2015
What?! Svava fer út annað kvöldið í röð. Í þetta sinn á uppistand í Háskólabíó þar sem aðaluppistandarinn ældi hatri sínu út um allt og kvartaði yfir að hafa yfir höfuð fæðst. Ó, þú lágmenning.
29/10 2015
Yoga moves kvöld.
Trylltur dans og djúpslökun við lifandi gong. Getur kona beðið um meira?

28/10 2015
Er þannig gerð að ég verð að hnýta lausa enda. Get ekki endað tengslum við aðra manneskju í gremju. Náði sáttum við ákveðinn aðila og flýt nú um í sjöunda himni. Fargi af mér leitt. Get nú kvatt þennan vin og haldið áfram.
27/10 2015
Finn hemóglúbínið magnast og er svo glöð með það. Þarf ekki lengur að fara heim að leggja mig vegna þreytu. Æðislegt. Svo gott.
Monday, October 26, 2015
25/10 2015
Barnaafmæli er eins góð afsökun og önnur fyrir að dressa sig upp og gellast smá.
Mental note to self: finna og horfa á myndina When Stella got her groove back.

Saturday, October 24, 2015
24/10 2015
Prinsessur eins og ég eiga ekki að þurfa að búa í fjölbýlishúsi í borgarkjarnanum. Það er bara þannig.
23/10 2015
Af eilífri viðleitni minni til að láta mér líða vel og vera ánægð með sjálfa mig fór ég (aftur) í litun.
Úr því að vera dökkhærð í það að vera ljóshærð. Var ekki alveg að fíla mig svona dökkhærða.
Í sál minni er ég ljóshærð. Það er bara þannig.
Finnst ég flottari svona. Það skrýtna er að enginn sagði orð!
Ekki Svanur, ekki míns eigin móðir, vinnufélagi, börnin mín.. Enginn!
Mér finnst nú alveg dáldil breyting að vera alveg dökkhærð og verða svo (aftur) alveg ljóshærð...
Things that make you go hmmmmm...

22/10 2015
Yoga moves.
Þreytta húsmóðirin ákvað að stíga út fyrir þægindarammann og fara í Yoga moves tíma á dansverkstæðinu við Skúlagötu.
Hef farið í tíma hjá stráknum sem er með þessa tíma og finnst hann svo æðislegur gaur og magnaður yogakennari. Enda var þetta alveg magnað.
Hann byrjar alltaf á að segja eitthvað æðislegt. Eitthvað sem maður þarf að heyra akkúrat á því augnabliki sem hann segir það. Svo eru yogaæfingar í smá tíma og svo kom það skemmtilegasta.
Þarna var dj og svo voru yogamotturnar settar til hliðar og farið að dansa. Mikið sem það var gott. Mögnuð útrás. Fólk alveg sleppti sér. Ég líka:) Það var æði, allir brosandi og svo góður fílingur í loftinu. Svo voru gerðar alls konar æfingar og í endann var heilunarflæði, slökun og sam-ómun.
Mmmmm, akkúrat sem ég þurfti.
Ást og friður.

21/10 2015
Loksins almennilegur CD.
Næstur í röðinni var OM (sanctuary.) Það er bara eitt lag og það eru búddar að óma saman. Geðveikt.
Svo róandi. Þessi fer á ipodinn og spilast þegar þarf að róast.
Word.

Tuesday, October 20, 2015
20/10 2015
Sjáiði, hvað þetta er falleg dagsetning. :)
20, 10, 20, 15. Dásamlegt.
Náði að sofa í nótt svo að þessi dagur er öllu bærilegri. Guðrún Halla fór í leikskólann í morgun en ég verð að viðurkenna að mig langar mest til að sækja hana snemma.. hún hlýtur að vera ennþá slöpp...

19/10 2015
Úps.
Guðrún Halla veik. Hafði gubbað um nóttina og var með hita og var slöpp:/ Ég hafði lítið sofið um nóttina, fyrst út af GH en svo gat ég ekki sofið fyrir helvítis kælipressunni.
Var hálf í vinnunni og alveg ógeðslega þreytt og drulluslöpp.

18/10 2015
Fann hjá mér þörf fyrir að fara í Ashtanga yoga þrátt fyrir að hafa verið á árshátíð deginum áður að dansa og ég fór reyndar líka í zumba í gær.
Fann því fyrir verulegri þreytu eftir tímann. Tókum okkur samt til og tókum vel til í íbúðinni þennan dag..

17/10 2015
Árshátíð:)
hún var nú bara með hefðbundnu sniði þetta kvöld, allt í lagi. Hún var á Icelandair hotel Natura. Heiðar Ástvalds held ég að hann heiti sem er með dansskólann var veislustjórinn og þetta gekk allt smurt fyrir sig.
Það var góður matur, happdrætti, starfsviðurkenningar (þar sem ég fékk 5 ára starfsviðurkenningu..;))
svo var dansað og gaman. Fannst nú alveg gaman að dansa en svo var þetta bara komið gott. Svanur var með mér og við höfðum mætt upp úr kl. 17 í forpartýið upp á skrifstofu..
Já, já..

Friday, October 16, 2015
16/10 2015
Þannig að ég var fljót að taka næsta disk í skápnum sem var reyndar líka Placebo diskur. Bara annar...
Mér leið alveg eins með hann. Ekkert spes. Er svo ekki á sama stað og fyrir 18 árum. Guði sé lof.

15/10 2015
Jæja, diskurinn sem var næstur á dagskrá úr skápnum og í bílinn var einhver Placebo diskur. Man ekki hvað hann heitir en ég fékk hann skrifaðan í jólagjöf frá Tryggva bróður með útprentuðu coveri og svona. Það var nú þáverandi kærasta hans sem gerði þetta allt saman..
allavegana, þetta voru ekkert svo gleðilegir endurfundir.
Ég er að verða meiri kelling með hverjum deginum og finnst þessi tónlist ekkert svo kúl lengur. Bara eitthvað væl og angurværð og reyndar kannski eitt lag á þessum diski sem var oft spilað í den og flestir sem voru ungir fyrir svona.... 18 árum ætti að þekkja.
Mér finnst þeir ekkert spes núna en man að ég fílaði þá alveg í ræmur í den.

14/10 2015
Þannig að ég er sem sagt að fara til Bali í byrjun mars 2016. 10 daga fjarvera sem þessi húsmóðir verður frá þessu heimili.
Það er ágætt að hafa þessa gulrót í vetur þegar veður versnar..

13/10 2015
... allavegana, kona á ferðaskrifstofu sendi okkur tillögu sem ég var nú ekkert rosalega hrifin af vegna þess að þá er fyrst flogið til Frankfurt og svo þarf að bíða þar í 10 tíma áður en flogið er til Singapore þar sem maður hefur innan við klukkutíma í að koma sér í næstu vél...
svo ég bað um aðra tillögu sem kom í ljós að var eitthvað svipað.. flogið til Svíþjóðar og bið þar í 10 tíma, svo flogið til Qatar... allavegana, vorum búnar að ákveða að vilja vera samferða og þetta hringsnerist í hausnum á mér.
Vinnufélagarnir gerðu gys að mér fyrir að vera með svona lúxusvandamál en ég var/er svo áhyggjufull yfir að vera yfir mig þreytt. Það er flogið til Frankfurt um kl. 07:35 sem þýðir að sú nótt er ónýt og svo þarf maður að sofa næstu nótt í flugvél:( aumingja ég... Æ, þegiðu Svava.
Allavegana, Frankfurt leggurinn varð ofan á. Vissi ekki fyrr en ferðafélagar mínir, konur sem ég hef ekki hitt, voru búnar að kaupa leiðina sem fór síhækkandi. Þennan dag var hún 10000 kr dýrari heldur en deginum áður.
Stressaðist öll upp og keypti miðann. Smá spennufall á eftir. Líka mikið áreiti í vinnunni og ég var að senda þeim þessar tillögur í tölvupósti og tilkynna á síðuna og blablabla....

12/10 2015
Þessi dagur fór í að stressast út af fyrirhugaðri Bali ferð.
Þetta er námskeiðið (retreatið) og hótelið saman í einu verði og svo flugið sér.
Fór að fá pósta frá Gyðjunum að þeir sem væru á VIP listanum yrðu nú að fara bóka sem ég og gerði. Líka að mikilvægt væri að fara huga að fluginu og borga það og svona... það er hópur á fb sem við erum í ...

Sunday, October 11, 2015
11/10 2015
Góður sunnudagur.
Er reyndar voða þreytt og sybbin en fór í yoga í morgun sem einhvern veginn kemur aldrei í bakið á manni. Vil helst ekki fara meira út í dag.

10/10 2015
Góður laugardagur.
Vann smá. Fór í bíó á The Intern með Önnu Láru. Mjög góð mynd, svona feel good mynd. Grenjaði smá yfir henni eftir hlé.. oh, get verið svo viðkvæm þegar kemur að málefnum hjartans:/
Hringdum og pöntuðum á Saffran, sóttum og fórum heim til Beggu sín í gott spjall. Góður matur, góður félagsskapur, gott kvöld:)

Tuesday, October 6, 2015
5/10 2015
Ok.
Ég ætla ekki að gera þetta aftur á næsta ári að blogga á hverjum degi.
Ég meina, eins og þessi dagur. Þetta var bara ósköp venjulegur vinnudagur og bara voða lítið við það að bæta...;)
Ætla að verða menningarlegri í meistaramánuðnum. Fann alveg fyrir því í fjölskylduboðinu á laugardaginn að maður þarf að horfa meira á fréttir og svona þætti eins og Vikan og Kastljós og svona. Þannig að markmiðið mitt í meistaramánuðnum er að verða meðvitaðri um það sem er í gangi innanlands og utan.
Lago.

4/10 2015
Einmitt mjög skrýtið með þennan dag að ég var bara rosa hress og til í allt.
Það var mígandi rigning en ég fór og útréttaði, fór í apótek og í Kringluna með elsku mömmu sem ég elska svo mikið. Versluðum og spjölluðum á kaffihúsi sem var auðvitað frábært og æðislegt.
Fór svo og hitti Siggú í Hafnarfirði í kaffi og langan göngutúr sem var náttúrulega bara æði líka. Svo ánægð með þennan dag:)
Allt er frábært þegar orkan er í lagi.

3/10 2015
þetta var dáldið spes laugardagur.
Mætti alveg spræk í zumba og þetta var rosalega góður tími. Mér fannst svo gaman að það voru teknir gömlu dansarnir frá því að ég byrjaði fyrst. Það var æði:)
Síðan varð ég nefnilega rosalega þreytt. Bara alveg eins og orkan hefði sogast út úr mér:/ það var sérstaklega leiðinlegt af því að það var fjölskyldukaffi og afmæli og ég var að hitta fólkið mitt í fyrsta skiptið í langan tíma. Það var samt alveg gaman.
Ég bara verð að verða mér út um meiri blóðmör. Fór í Krónuna um daginn og það var ekki til! Soðin blóðmör var til (það stendur reyndar "soðinn" með tveimur n-um sem ég skil ekki alveg) en ekki svona frosin(n)..
Er sem sagt ennþá í veseni með orkuna mína sem er ekkert rosalega gott. En þetta kemur Svava mín, já já.

Friday, October 2, 2015
2/10 2015
Ég finn áþreifanlega fyrir því að lífið mitt er að breytast til hins betra. Í dag og í gær labbaði Stefán Máni sjálfur heim af frístundaheimilinu. Hann gerir það héðan í frá. Mér finnst þetta æði:)
Fór og sótti Guðrúnu Höllu og upplifði smá skelfingu þar sem hún var úti að leika en við fundum hana ekki. Úff, þetta var alveg mínúta þar sem mér stóð eiginlega ekki á sama en þá fann ég hana inn í svona dæmi undir kastalanum. Phew...
Í dag legg ég fína svarta þunna jakkanum mínum. Það er orðið of kalt. Brrr.. Mig vantar soft shell jakka. Ó já.

1/10 2015
Þetta var skelfilegur dagur.
Hafði sofið illa um nóttina. Vaknaði annað hvort við víbringinn frá helvítis kælipressunni sem er undir svefnherberginu eða vaknaði og gat ekki sofnað fyrir látunum í helvítis pressunni. Ef þetta gerist einu sinni enn þá slekk ég á henni fjandinn hafi það.
Það kemur sér nú vel að Svanur sé formaður húsfélagsins. Hann er nú búinn að reyna alveg fullt til að hljóðdeyfa þetta en það er ekki að virka.
Þetta er skólabókardæmi um það sem ég er að lesa um í bókinni Karlar eru frá mars, konur frá Venus þar sem segir frá því að Venusardísir þurfa að ræða vandamálin. En þegar ég ræði þetta við Svan þá hagar hann sér alveg eins og bókin segir til um; finnst eins og ég sé að ásaka sig um að standa sig ekki. Hann veit greinilega ekki að Venusardísir þurfa að ræða málin. Þá líður þeim betur!
Oh, þessir karlar.
Og með þessa kælipressu get ég sagt að það er verið að fórna hamingju fjögurra íbúða sem eru beint fyrir ofan helvítið til að aðrir íbúar geta verið með kæliherbergið sitt eins og ekkert sé.
Fjandinn hafi það.
Ég komst ekki í keilu með vinnunni eins og ég hafði ætlað mér af því að ég fékk ekki svefninn minn. Aumingja ég! #lúxusvandamál #shutupprincess

30/9 2015
Þetta var góður vinnudagur.
Orkan mín var fín og í vinnunni fór ég á kaffihús niðrí bæ á smá vinnufund með Eddu minni. Það var nice.
Góður dagur.

Subscribe to:
Posts (Atom)