Friday, October 16, 2015

15/10 2015

Jæja, diskurinn sem var næstur á dagskrá úr skápnum og í bílinn var einhver Placebo diskur. Man ekki hvað hann heitir en ég fékk hann skrifaðan í jólagjöf frá Tryggva bróður með útprentuðu coveri og svona. Það var nú þáverandi kærasta hans sem gerði þetta allt saman..

allavegana, þetta voru ekkert svo gleðilegir endurfundir.

Ég er að verða meiri kelling með hverjum deginum og finnst þessi tónlist ekkert svo kúl lengur. Bara eitthvað væl og angurværð og reyndar kannski eitt lag á þessum diski sem var oft spilað í den og flestir sem voru ungir fyrir svona.... 18 árum ætti að þekkja.

Mér finnst þeir ekkert spes núna en man að ég fílaði þá alveg í ræmur í den.


No comments: