þetta var dáldið spes laugardagur.
Mætti alveg spræk í zumba og þetta var rosalega góður tími. Mér fannst svo gaman að það voru teknir gömlu dansarnir frá því að ég byrjaði fyrst. Það var æði:)
Síðan varð ég nefnilega rosalega þreytt. Bara alveg eins og orkan hefði sogast út úr mér:/ það var sérstaklega leiðinlegt af því að það var fjölskyldukaffi og afmæli og ég var að hitta fólkið mitt í fyrsta skiptið í langan tíma. Það var samt alveg gaman.
Ég bara verð að verða mér út um meiri blóðmör. Fór í Krónuna um daginn og það var ekki til! Soðin blóðmör var til (það stendur reyndar "soðinn" með tveimur n-um sem ég skil ekki alveg) en ekki svona frosin(n)..
Er sem sagt ennþá í veseni með orkuna mína sem er ekkert rosalega gott. En þetta kemur Svava mín, já já.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment