Friday, October 2, 2015

1/10 2015

Þetta var skelfilegur dagur.

Hafði sofið illa um nóttina. Vaknaði annað hvort við víbringinn frá helvítis kælipressunni sem er undir svefnherberginu eða vaknaði og gat ekki sofnað fyrir látunum í helvítis pressunni. Ef þetta gerist einu sinni enn þá slekk ég á henni fjandinn hafi það.

Það kemur sér nú vel að Svanur sé formaður húsfélagsins. Hann er nú búinn að reyna alveg fullt til að hljóðdeyfa þetta en það er ekki að virka.

Þetta er skólabókardæmi um það sem ég er að lesa um í bókinni Karlar eru frá mars, konur frá Venus þar sem segir frá því að Venusardísir þurfa að ræða vandamálin. En þegar ég ræði þetta við Svan þá hagar hann sér alveg eins og bókin segir til um; finnst eins og ég sé að ásaka sig um að standa sig ekki. Hann veit greinilega ekki að Venusardísir þurfa að ræða málin. Þá líður þeim betur!

Oh, þessir karlar.

Og með þessa kælipressu get ég sagt að það er verið að fórna hamingju fjögurra íbúða sem eru beint fyrir ofan helvítið til að aðrir íbúar geta verið með kæliherbergið sitt eins og ekkert sé.

Fjandinn hafi það.

Ég komst ekki í keilu með vinnunni eins og ég hafði ætlað mér af því að ég fékk ekki svefninn minn. Aumingja ég! #lúxusvandamál #shutupprincess

No comments: