Ég finn áþreifanlega fyrir því að lífið mitt er að breytast til hins betra. Í dag og í gær labbaði Stefán Máni sjálfur heim af frístundaheimilinu. Hann gerir það héðan í frá. Mér finnst þetta æði:)
Fór og sótti Guðrúnu Höllu og upplifði smá skelfingu þar sem hún var úti að leika en við fundum hana ekki. Úff, þetta var alveg mínúta þar sem mér stóð eiginlega ekki á sama en þá fann ég hana inn í svona dæmi undir kastalanum. Phew...
Í dag legg ég fína svarta þunna jakkanum mínum. Það er orðið of kalt. Brrr.. Mig vantar soft shell jakka. Ó já.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment