Yoga moves.
Þreytta húsmóðirin ákvað að stíga út fyrir þægindarammann og fara í Yoga moves tíma á dansverkstæðinu við Skúlagötu.
Hef farið í tíma hjá stráknum sem er með þessa tíma og finnst hann svo æðislegur gaur og magnaður yogakennari. Enda var þetta alveg magnað.
Hann byrjar alltaf á að segja eitthvað æðislegt. Eitthvað sem maður þarf að heyra akkúrat á því augnabliki sem hann segir það. Svo eru yogaæfingar í smá tíma og svo kom það skemmtilegasta.
Þarna var dj og svo voru yogamotturnar settar til hliðar og farið að dansa. Mikið sem það var gott. Mögnuð útrás. Fólk alveg sleppti sér. Ég líka:) Það var æði, allir brosandi og svo góður fílingur í loftinu. Svo voru gerðar alls konar æfingar og í endann var heilunarflæði, slökun og sam-ómun.
Mmmmm, akkúrat sem ég þurfti.
Ást og friður.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment