Friday, October 16, 2015

13/10 2015

... allavegana, kona á ferðaskrifstofu sendi okkur tillögu sem ég var nú ekkert rosalega hrifin af vegna þess að þá er fyrst flogið til Frankfurt og svo þarf að bíða þar í 10 tíma áður en flogið er til Singapore þar sem maður hefur innan við klukkutíma í að koma sér í næstu vél...

svo ég bað um aðra tillögu sem kom í ljós að var eitthvað svipað.. flogið til Svíþjóðar og bið þar í 10 tíma, svo flogið til Qatar... allavegana, vorum búnar að ákveða að vilja vera samferða og þetta hringsnerist í hausnum á mér.

Vinnufélagarnir gerðu gys að mér fyrir að vera með svona lúxusvandamál en ég var/er svo áhyggjufull yfir að vera yfir mig þreytt. Það er flogið til Frankfurt um kl. 07:35 sem þýðir að sú nótt er ónýt og svo þarf maður að sofa næstu nótt í flugvél:( aumingja ég... Æ, þegiðu Svava.

Allavegana, Frankfurt leggurinn varð ofan á. Vissi ekki fyrr en ferðafélagar mínir, konur sem ég hef ekki hitt, voru búnar að kaupa leiðina sem fór síhækkandi. Þennan dag var hún 10000 kr dýrari heldur en deginum áður.

Stressaðist öll upp og keypti miðann. Smá spennufall á eftir. Líka mikið áreiti í vinnunni og ég var að senda þeim þessar tillögur í tölvupósti og tilkynna á síðuna og blablabla....


No comments: