Það er skrýtið að ég heyrði fyrst um þennan merkilega mann þegar hann dó. Þá kom holskefla af minningarorðum frá frægu fólki sem bar honum svo vel söguna. Apparantly he´s a legend. Hann gifti Ellen Degeneres og Portiu. Hann þekkti Opruh og eftir að hafa hlustað á þau bæði á hljóðbókum núna finnst mér þau tala mjög svipað.
Núna er ég búin kynna mér þennan mann aðeins og hlusta á nokkrar hljóðbækur eftir hann og mér finnst hann algert æði. Hann er svona, hvað segir maður, vitringur sem skrifar bækur og talar um meiningu lífsins. Æ, ok, hann er höfundur margra sjálfshjálparbóka.
Ég elska sjálfshjálparbækur. Algert case. Allavegana, hérna er quote eftir hann:
Doing what you love is the cornerstone of having abundance in your life. Wayne Dyer.
Auðvitað reyndar. Þetta segja þau öll. En mér finnst þetta reyndar ekki eins einfalt og þetta hljómar en ég er mikið að spá í þessu og núna get ég ekki hugsað mér að vinna við annað en það sem ég hef áhuga á að vinna við.
Núna er ég atvinnuleitandi og er að taka "baby steps" á þetta. Ég er byrjuð hjá markþjálfa sem er mjög gott aðhald. Ég fékk heimavinnu eftir okkar fyrsta fund núna í gær og já, ég verð sem sagt að gera eitthvað. Er komin með ágætis plan fyrir framtíðina en núna þarf ég fyrst og fremst að finna vinnu, eitthvað sem hentar mér og kemur mér á þann stað sem ég vil vera.
Ok, better work at it.
Later peeps.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment