Wednesday, November 7, 2018

A confession from a desperate housewife

Þáttaröðin Hversdagsreglur er skemmtileg þáttaröð sem leggur línurnar um ýmislegt í mannlegum samskiptum. Þetta eru þættir þar sem margvísleg málefni eru tekin fyrir og svo er sett regla um málið í enda þáttarins. Dæmi: eiga Íslendingar að heilsast í útlöndum? Komist var að þeirri niðurstöðu að það þyrfti ekki að heilsast ef við erum á fjölförnum ferðamannastöðum í t.d. Evrópu en ef Íslendingar hittast t.d. í Asíu eða Afríku þá ber þeim að heilsast.


Annað málefni var hvenær ber manni að skila því sem maður fær lánað hjá nágrannanum. Komist var að þeirri niðurstöðu að ef um væri að ræða undir t.d. líter af mjólk þyrfti maður ekki að skila.


Allavegana, ung kona hér í borg var ekki að eiga sinn besta dag í dag. Eiginmaður hennar hafði ákveðið að nota Hue ljósið til að vakna í morgun (nótt) og hafði samstillt það vekjaraklukkunni svo blessuð ljósaperan í svefnherberginu fór að líkja eftir sólarupprás of snemma fyrir hennar smekk eða kl 06:38. Hún veit þetta því þetta var tíminn sem hún vaknaði vegna ljóssins.

Eftir skólann var konan mætt til kírópraktorsins dauðþreytt og með maskarann niður á kinnar. Þetta vissi hún ekki fyrr en seinna. Verandi í nuddskólanum hafði maskarinn farið út um allt þegar hún var að þiggja smá nudd. Allavegana, verandi hálf pirruð fer hún að spyrja út í tímann sinn þegar hún er búin að bíða í korter. Þetta er kannski en kannski ekki ég sjálf. Stuttu eftir það kemst hún loksins að, lítur loks í spegil og sér að maskarinn er í þremur lögum undir augunum. Útlitið var skelfilegt sem sagt.

Mín spurning sem ég beini til Hversdagsreglna er sem sagt (þættirnir eru hættir en ég segi bara svona): hvenær látum við hvort annað vita þegar svona lagað er í gangi? Ef við sjáum að manneskjan sem við erum að tala við er með lafandi hor eða með einhvers konar klessu á andlitinu, t.d. maskaraklessur, eigum við að láta hana vita eða ekki?

Mitt atkvæði er: JÁ 


1 comment:

Tinnsi said...

Alls enginn sérfræðingur í mannlegum samskiptum hér en ég myndi segja *undir eins*. Ef maður sér manneskju með eitthvað skrýtið, þá er ekki úr vegi að segja afsakið en þú ert með einhverja klessu á kinninni. Eða hvað? Ég þarf að sjá þessa þætti.