En Bali var ágæt á sinn hátt. Læt myndirnar tala sínu máli:
Hérna er það sem mér fannst best að fá mér í morgunmat á hótelinu í Seminyak. Svokölluð Bali bliss bowl. Sumar í skál:)
Svona tók baðkarið á móti okkur þegar við komum á fyrra hótelið. Allt voða lekkert. Það var reyndar ofboðslega falleg skreyting á hjónarúminu úr handklæðum; tveir svanir og rósablöð allt í kring en við vorum of þreytt eftir 37 tíma ferðalag til að muna eftir að taka mynd og vorum fljót að "rústa" þeim. Það voru allir rosalega almennilegir við okkur á hótelinu.
Hér er ég að róla í guðs grænni náttúrunni. Þessi staður heitir Bali swing og er fyrir Instagram myndatökur virðist vera. Flestar konurnar voru uppáklæddar í myndatökur og svo voru þarna ljósmyndarar sem tóku myndir af þeim í gríð og erg. Á myndinni sést hvar ein slík í grænum kjól er að róla sér lengst til hægri og niður. Önnur stendur á myndatökusteini þarna og er í myndatöku.
Þessa mynd tók ég í bílnum hjá Aliit, stráknum sem keyrði okkur út um allt suma dagana og tók sirka 3000 kr fyrir (400.000 rp.) Takið eftir að hann er með fórnir fyrir guðana eða hvað þetta nú er fyrir framan stýrið. Bæði heilagt vatn sem móðir hans blessaði um morguninn eins og hún gerir alla morgna fyrir hann með nýju vatni og nýrri fórn. Á Bali er hindúatrú og svona fórnarbakka má sjá víða fyrir framan flest rými. Aliit sagði að þetta væri fyrir góðri heppni (good luck) í umferðinni.
Hér er ég á gamlárskvöld (8 tímum á undan) klædd á balíska vísu í serong. Skráðum okkur í eitthvað áramótadæmi á hótelinu og fengum svona dress fyrir það. Svanur lagði ekki í sitt en það var tvenns konar efni sem hann átti að draga saman í pils og eitthvað:)
Á hótelinu á áramótafögnuðinum.
Í einni ferðinni með bílstjóranum komum við við í Butterfly Park en nafnið á garðinum segir nú alla sólarsöguna.
Bali bliss bowl.
Við fórum að forvitnast um þetta líkneski eða styttu eða hvað það er sem maður á að kalla þetta. Þetta skagar alveg upp úr öllu þegar horft er út eftir ströndinni hjá hótelinu sem er talsvert frá og alltaf þegar við vorum hjá ströndinni skagaði þetta upp úr. Kom í ljós að þetta er heill garður (stór) þangað sem fullt af túristum fara og borga sig inn. Sáum á sama stað sýningu með röð af balískum dönsum sem eru afar sérstakir dansar.
Hér er kallinn við dæmið.
Einhvers staðar uppi á fjalli í apagarði.
Handklæðabangsi:)
Við á veitingastað á W hótelinu í Seminyak. Gasalega flott hótel og vinsælt.
Fórum í dýragarðinn í fílagöngu. Eitthvað sem maður hafði ekki prufað áður..
Fórum á kaffi og te plantekru. Þar var líka róla sem ég fór í. Öskraði mikið, var rólað mikið. Var smá hrædd. Konan á myndinni er sem sagt að mala kaffi.
Hér má sjá sólsetur við ströndina beint út frá hótelinu sem við vorum á.
Eftir að við skiptum um hótel í Ubud var tekið svona vel á móti okkur. Þarna var gott að vera. Sváfum vel, kyrrð og ró. Yndislegt.
Þetta var sem sagt þetta hótel. Rouge. Þetta var uppáhalds staðurinn minn þegar ég var þarna 2016. Þetta er veitingastaður (besta sushi sem ég hef smakkað), nuddstofa og svo innst hótel. Birtan gerir aðstöðunni ekki nógu góð skil en þarna er oftast mun bjartara. Dálítið kaldhæðnislegt að gistiheimilið Honeymoon sem við ætluðum að gista á og ég var á síðast var ekki að gera neina góða hluti fyrir okkur og við vildum ekki sofa þar.
Fegurðin er víða á Bali:)

Við vorum svo heppin að hitta þessi eðal eintök af Íslendingum þegar við áttum tvo heila daga eftir og var farið að leiðast. Fórum með þeim í hjólatúr um hrísgrjónaakra. Dásamleg ferð, mjög góður dagur. Vona innilega að það sé í lagi þeirra vegna (Sigríður og Halldór) að ég setji þessa mynd hér.
Var svo heppin að komast í sama yoga studio og ég fór í síðast síðustu klukkutímana og takk Svanur fyrir að gefa mér tíma og rými til að komast. Svo góður öndunartími með Geoff nokkrum minnir mig að kennarinn heiti. Tíminn hét The awakening of the breath. Selt. Svo góður tími, sérstaklega til að undirbúa mig undir langa ferðalagið heim.
Allavegana. Gott að vera komin heim. Þetta var áhugavert allt saman, sérstaklega að koma aftur í Ubud og á gistiheimilið sem ég var á síðast og geta ekki gist þar. Minningar eru oft svo rósrauðar:)
1 comment:
En hvað þetta hefur verið frábær ferð. Æðislegar myndir!
Post a Comment