Ég er blessunarlega búin að vera í fríi frá Instagram í tvo daga núna og er ekki frá því að mér líði aðeins betur í sálinni. Ég ætla að halda fríinu áfram.
Er komin með pirring yfir öllu glenniríinu. Þetta á auðvitað alls ekki við um alla en það eru margir sem eru að glenna sig í allar áttir þarna. Hamingju sinni. Maka sínum.
Svo hittir maður þetta fólk og það er ekkert svona í alvörunni. Ekki algilt samt.
Er ekki frá því að það sé aðeins meira pláss í hausnum á mér. Góð andleg hreinsun.
Instagram er samt ekki alslæmt. Sá þetta til dæmis þar. Elska þetta quote. Elska.
Maður les þetta með indverskum hreim.
It's funny because its true.
Þetta er áramótaheitið mitt. Eitt af þeim.
No comments:
Post a Comment