Wednesday, March 11, 2020

It was the best of times, it was the worst of times

Sérstakir tímar sem við lifum á.

Held að flest verkföll séu búin og börn komin aftur á leikskólann en vírusinn eimir enn yfir.

Núna er ég lítið að vinna út af Covid-19, allavegana ekki í fyrirtækjanuddinu. Hef ákveðið, Bogamaðurinn sem ég er, að gera sem best úr ástandinu og lít á þetta frí sem ákveðna blessun. 

Það er gott að hvíla sig og safna kröftum. Ákjósanlegt að hafa meiri orku fyrir fjölskylduna og lífið hreinlega. Tími til að hvílast, vera með fjölskyldunni. 

Er sammála flestum þeim sem tala um að nú sé móðir jörð að grípa til sinna ráða. Plágan, ef svo skal kalla, þýðir minni mengun, græðgi og hraða en meiri samveru og tíma til að njóta og hvílast.

Vona samt að þetta vari ekki of lengi.

No comments: