Tuesday, August 18, 2020

Herra Ágúst

Mig langar til að kynna ykkur fyrir herra Ágúst.


Hann er á dagatalinu sem 18 ára sonur minn gaf mér í jólagjöf. Ég er búin að venjast Ágúst og kann ágætlega við hann. Virðist vera ágætt karma yfir honum. Hann virðist vera sterkur og hjálplegur (já það er orð.)

Herra Ágúst, á dagatali slökkviliðsmanna, er við rúmið mitt og vakir yfir yfir mér. Hann er oft sá fyrsti sem ég sé á morgnana og sá síðasti sem ég sé fyrir svefninn. Oftast er það reyndar Svanur.

Veit ekki alveg af hverju ég fíla svona afbrigðilegheit. Eða er þetta kannski bara tiltölulega eðlilegt? 3ja barna gift móðir með afklædda herramenn við rúmið? Æ, við fílum þetta allavegana.

P.s. mér finnst ég vera oŕðin náin herra Ágúst. Ég á eftir að sakna hans.


No comments: