Tuesday, October 27, 2020

Við setjum vinstri höndina inn..

.. við setjum vinstri höndina út. Inn, út, inn, út og hrisstum hana til. Gerum hókí pókí og snúum okkur í hring. Þetta er allt og sumt! 😊

Er búin að vera að finna mikinn mun á hægri og vinstri hlið líkamans undanfarið. Lá í savasana í lok yogatíma um daginn og fann það mikinn mun að mér fannst vinstri hlið líkamans vera alveg í lagi en hægri hliðin lá eins og steypa og mér leið eins og hún sogaðist niður í gegnum parketið á meðan vinstri hliðin sveif upp.

Hafandi lært eitthvað um kinesology í nuddnáminu veit ég hvað jafnvægi á milli hliða er mikilvægt og þýðingarmikið fyrir heildina af heilsunni ef svo má að orði komast.

Undanfarnar vikur er mér líka búið að líða mjög asnalega í rifjaboganum hægra megin. Beinin eru búin að vera aum og viðkvæm og dáldið eins og þau séu að víkka eða þenjast út einhvern veginn..

Allavega!

Hef af þessum ástæðum öllum verið að nota vinstri hendina meira undanfarna daga til að jafna þetta út. Þrífa með henni, borða með henni o.s. frv..

Mæli með þessu. Held að það geri öllum gott að hafa meira jafnvægi á milli hliða.

Ég lærði annað gott ráð hjá konu sem ég var með í útiyoga í Covid vol I en það er að tannbursta sig þannig að maður skipti efri góm og neðri góm á milli hægri og vinstri handar og hefur svo gagnstæðan fót upp á hné og til hliða líka á móti.

Er alveg game changer í tannburstun sko!







No comments: