Friday, March 12, 2021

A confession

Hef gaman af raunveruleikaþáttunum ÆÐI. Finnst þeir fyndnir og skemmtilegir.

Tengi mikið við Binna Glee sem í þáttunum byrjar að búa með Patta sem kemur allt í einu með hund heim og segir eitthvað eins og: sko, það verða allir að eiga hund.

Aumingja Binni segir á innsoginu: þú veist ég þoli ekki dýr.

Undirrituð hefur aldrei komið við hamsturinn Nóu sem þó er búin að vera inn á heimilinu í marga mánuði. Eins ástrík og ég er ... get ég ekki komið við dýrið.

Sýklafóbía (eða eitthvað.) 

! ? !


No comments: