Monday, January 7, 2008

Laugar Spa


Loksins! Loksins fór ég í Laugar Spa. (BTW, FYI gæti ég sko alveg totally verið þessi gella á myndinni ef ég væri ekki ólétt. Víst! hvað ertu að segja að ég sé feit eða?)

Og fílaði það í botn:) Elska að vera í gufu, sérstaklega með svona mentol lykt og nice-heitum og svo elskaði ég líka heita pottinn sem var þarna. Sérstaklega mikið elskaði ég "kósý herbergið." Í þessu herbergi liggur fólk í hring á þess til gerðum legubekkum og bara steinheldur kjafti og chillar. Í miðjunni er arineldur og svo er svona falin bakgrunnshljóð eins og rigning sem maður heyrir bara ef maður hlustar rosa vel og róleg róandi tónlist. Enda var ég þarna mjög lengi...

Já, fékk svona gjafabréf fyrir tvo frá vinnunni í Laugar Spa (tók Svaninn með) og er núna á algerum bömmer yfir að vera ekki bara alltaf í "æðri og flottari" búningsklefanum. Já, mig langar bara ekki rass í bala í "almennings" búningsklefann núna. Fussum svei.

Annars bið ég dygga lesendur þessa bloggs míns vel að lifa á nýju ári. Verð samt að viðurkenna að mér finnst dáldið spes að enginn kommenti. Nema Tinna (þessi elska). By the way Tinna, rosalega gaman og notalegt að hitta þig á nýársdag honey:) Þú ert svo mikill snillingur. Og engar áhyggjur, héðan í frá fer nestið mitt bara í (umhverfisvænt) nestisbox en auðvitað ekki í álpappír og svo í plast. Hvað var ég að spá?! (er búin að vefja samlokunum mínum í álpappír og setja þær svo í nestisplastpoka í langan tíma eins og sauður, já eins og sauður fjandinn hafi það.. well, en ekki lengur.)

Lifið vel, peeps

1 comment:

Tinnsi said...

Gott að heyra Svava mín, það er svo undarleg tilfinning þegar maður fattar að eitthvað sem maður gerir bara í hugsunarleysi megi gera á betri veg. Maður getur allavegana huggað sig við að maður fattaði þetta þarna en ekki síðar. Vona að þú eigir líka gott ár Svava, hlakka til að frá línu frá þér, þín Tinna